MAS - Motor Assessment Scale


Lýsing

Matskvarði sem metur hreyfifærni hjá einstaklingum sem fengið hafa heilaslag


Prófið inniheldur átta aðalþætti:

  • Snúa sér í rúmi af baki yfir á hlið
  • Setjast fram á stokkinn úr baklegu
  • Sitja
  • Standa upp
  • Ganga
  • Handleggur
  • Hönd
  • Fínhreyfingar handar


Allir þættir eru metnir á 7-punkta kvarða, frá 0-6, þar sem 6 er besta mögulega geta. 0 er gefið ef viðkomandi getur ekki framkvæmt atriði nr. 1. Hver þáttur er prófaður þrisvar og besta niðurstaðan er skráð. 


Markhópur

Einstaklingar sem hafa fengið heilaslag. Með þessu prófi getur verið erfitt að meta þá sem verst eru haldnir og þá sem eru með mjög lítil einkenni heilaslags. Talið einfalt í notkun bæði í daglegri þjálfun og við rannsóknir.


Tími

15-30 mínútur


Útbúnaður

Það þarf þó nokkurn búnað til að gera þetta próf en hann er væntanlega til staðar á sjúkraþjálfarastöðvum t.d. borð, tröppur (8 þrep), glas, hárgreiða, penni og skeiðklukka.


Niðurstöður

Prófið er raðkvarði. Ekki má gera ráð fyrir að jafnt bil sé á milli gilda.


Formleg íslensk þýðing er ekki til en nokkrar þýðingar hafa verið í gangi. Faghópur sjúkraþjálfara á taugasviði hefur rætt um að samræma notkun á þessu prófi hérlendis.


Þetta próf er m.a. notað á LSH, FSA-Kristnesi, Reykjalundi og Grensás. Breytt útgáfa af MAS, svokölluð M-MAS UAS-99 var búin til í Uppsölum, Svíþjóð án leyfis höfunda. Sú útgáfa hefur náð einhverri útbreiðslu á Norðurlöndunum og er notuð á Íslandi.


Heimildir

  • Carr J, Shepherd R et al (1985) Investigation of a new Motor Assessment Scale for stroke patients. Physical Therapy 65, 2, 175-180.


  • Poole (1988), Loewen SC, Anderson BA (1988) Reliability of the modified Motor Assessment Scale and the Barthel Index Physical Therapy 68, 1077 - 81.


Lykilorð

færni, slag, helftarlömun, stroke