Efri árin: Mat á færni og fötlun
Late-life: Funtion and Disability Index


Lýsing

Spurningalisti til að meta athafnir og þátttöku.


Listinn nýtist til að meta líkamlega getu í ýmsum athöfnum daglegs lífs og félagslega þátttöku. 

Mælitækið skiptist í tvo hluta þar sem áherslan er á athafnir annarsvegar (Efri árin MFF: færni) og þátttöku hinsvegar (Efri árin MFF: fötlun).
 
Efri árin MFF: færni, byggir á 32 spurningum sem gefa upplýsingar um líkamlega færni:

  1. almennt (physical functioning score),
  2. við athafnir sem reyna á neðri útlimi (lower extremity functioning score),
  3. við athafnir sem reyna mikið á neðri útlimi (advanced lower extremity functioning score),
  4. við athafnir sem reyna á efri útlimi (upper extremity functioning score).

Efri árin MFF: fötlun, inniheldur 16 spurningar sem gefa upplýsingar um:

  1. hversu oft einstaklingar taka þátt (disability frequency score),
  2. takmarkanir á þátttöku (disability limitation score).



Markhópur

Mælitækið var upphaflega hannað fyrir rannsóknir á eldra fólki (≥ 60 ára) sem býr í heimahúsum. Notkun þess hefur síðan breiðst út og nú má meðal annars finna rannsóknir sem styðja við notkunarmöguleika mælitækisins í göngudeildar- og endurhæfingarþjónustu. Einnig benda rannsóknir til notagildis þess við mat á athöfnum og þátttöku hjá einstaklingum á miðjum aldri sem hafa ýmsa langvinna sjúkdóma og fatlanir. 

Tími

15 mínútur


Útbúnaður

Spurningalisti og handbók


Niðurstöður

Niðurstöður mælingana eru á jafnbilakvarða sem spannar bilið frá núll til 100. Fleiri stig gefa til kynna að einstaklingur hafi meiri færni eða minni fötlun á tilteknu sviði.


Heimildir

  • Haley, S.M., Jette A. M. , Coster W. J. , Kooyoomjian J. T. , Levenson S. , Heeren T. , & Ashba J. (2002). Late Life Function and Disability Instrument: II. Development and Evaluation of the Function Component. Journal of Gerontology: MEDICAL SCIENCES, 57A, M217-M222.


  • Jette A. M. , Haley S. M. , & Kooyoomjian J. T. (2003). Are the ICF Activity and Participation Dimensions Distinct? Journal of Rehabilitation Medicine, 35, 145-149.


  • Jette A. M. , Haley S. M. , Coster W. J. , Kooyoomjian J. T. , Levenson S. , Heeren T. , & Ashba J. (2002). Late Life Function and Disability Instrument: I. Development and Evaluation of the Disability Component. Journal of Gerontology: MEDICAL SCIENCES, 57A, M209-M216.


  • Jette A. M., Haley S. M., Kooyoomjian J. T. (2002). Late Life Function and Disability Instrument: Late Life FDI Manual. Boston: Roybal Center for the Enhancement of Late Life Function.


Lykilorð

Færni, fötlun.


Tengiliður á Íslandi

Sólveif Ása Árnadóttir, sjúkraþjálfari, netfang: saa@unak.is


Spurningalistinn er aðgengilegur hér:

Efri árin: Færni

Efri árin: Fötlun