Functional Independence Measure (FIM)


Lýsing

Metur umönnunarþörf endurhæfingarsjúklinga.


Segir til um þörf fyrir aðstoð. Skiptist í tvo hluta: hreyfigetu með 13 þáttum og andlega getu með 5 þáttum. Sjúklingar eru síðan metnir eftir þessu á bilinu; “Ófær um að sjá um sig sjálfur” til “Sjálfstæður”.


Markhópur

Endurhæfingarsjúklingar


Heimildir

  • Eigendur FIM mælitækisins er Uniform Data System for Medical Rehabilitiation, 270 Northpoint Parkway, Suite 300, Amherst, New York, 14228-1897. 
  • Mælitækið er áreiðanleikaprófað. Réttmæti og spágildi hefur einnig verið athugað á yfir 1000 endurhæfingarstofnunum. Stofnun gerir áskriftarsamning um notkun mælitækisins, auk þess þarf starfsfólk að sækja námskeið og taka próf. Sigrún Knútsdóttir sjúkraþjálfari er tengiliður: sigrunkn@landspitali.is