International Physical Ativity Questionnaire (IPAQ) - Alþjóðlegur spurningalisti um hreyfingu
Lýsing
Kvarði þar sem meðal annars er metin stjórn og gæði líkamsstöðu hreyfihamlaðra einstaklinga.
Heildræn skoðun og skráning fyrir einstaklinga með mikla hreyfihömlun og flóknar þarfir. Skráning heilsufars- og félagsupplýsinga, athafna daglegs lífs og grófhreyfifærni. Kvarði þar sem meðal annars er metin stjórn og gæði líkamsstöðu hreyfihamlaðra einstaklinga. Námskeið er nauðsyn fyrir notkun matsins.
Höfundur: Pauline M. Pope
Markhópur
Hreyfihamlaðir einstaklingar.
Útbúnaður
Aðstaða til heildrænnar skoðunar og viðtals við einstakling og / eða aðstoðarmann, liðmælir, bekkur eða dýna. Eyðublöð sem tilheyra matinu.
Niðurstöður
Líkamsstaða og stöðustjórnun er metin. Færni í stjórnun líkamsstöðu er metin í sjö þrepum og gæði hennar í 6 þrepum. Mældir eru liðferlar (ROM: Range of Movement). Skráð er líðan einstaklingsins; vöðvaspenna, verkir, skyn, öndun og fleira.
Heimildir
Severe and Complex Neurological Disability: Management of the Physical Condition ( 2007) Pauline M. Pope
Tengiliður
Guðný Jónsdóttir, Endurhæfing þekkingarsetur

