WDQ spurningalisti (hálshnykksáverkar)
Lýsing
Spurningalisti um áhrif hálshnykksáverka og færniskerðingu í kjölfar þeirra.
Spurningalistinn samanstendur af 13 spurningum þar sem sjúklingur merkir við tölu á 11 punkta raðkvarða ( 0 – 10). Hámarksstig geta verið 130.
Þeir þættir sem spurt er um eru m.a.: núverandi verkir, daglegar þarfir, vinna, svefntruflanir, þreyta, þátttaka í félagslífi, andlegt ástand og einbeiting.
Markhópur
Einstaklingar sem hafa orðið fyrir hálshnykksáverka.
Tími
5-10 mínútur
Útbúnaður
Spurningalisti.
Niðurstöður
Til að fá út heildarstig eru tölur sem merkt er við í hverri spurningu lagðar saman. Breyting milli mánaða > 15 stig er túlkað sem marktæk breyting á ástandi sjúklings.
Heimildir
- Pinfold M og félagar (2004). Valdity and internal consistency of a whiplash- specific disability measure. Spine, 29: 263 – 268.
- Niere K (2006). The whiplash disability qestionnaire (WDQ). Austr. J Physiotherapy 52:151.
Lykilorð
Háls, verkir, whiplash
Spurningalistinn er aðgengilegur hér:

