Atvinnuauglýsingar
Laus störf sjúkraþjálfara
Hér eru birt laus störf fyrir sjúkraþjálfara og önnur störf sem tengjast farinu. Hér geta bæði nýútskrifaðir og reyndir sjúkraþjálfarar fundið tækifæri til að þróa sig áfram í starfi, hvort sem er á heilbrigðisstofnunum, í endurhæfingu eða sjálfstæðum rekstri. Við hvetjum stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga til að auglýsa störf á síðunni og ná þannig beint til markhóps fagfólks í sjúkraþjálfun.
Viltu auglýsa starf á síðunni?
Sendu tölvupóst á sigl@bhm.is og fáðu nánari upplýsingar um verð og fyrirkomulag
Ás hjúkrunarheimili
Langar þig að starfa við fjölbreytt og skemmtilegt starf í líflegu og heimilislegu umhverfi?
Við hjá Ási erum að leita að sjúkraþjálfara til starfa. Í starfinu færðu tækifæri til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði sjúkraþjálfunar og stuðla að aukinni færni og vellíðan heimilisfólks
Sjúkraþjálfari í Ási gegnir jafnframt hlutverki deildarstjóra sjúkraþjálfunar og hefur því gott svigrúm til að móta starfið, þróa þjónustuna og koma eigin hugmyndum í framkvæmd.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Fagleg umsjón og skipulag sjúkraþjálfunar á heimilinu
· Ábyrgð á faglegri þróun og gæðum sjúkraþjálfunar
· Þátttaka í teymis- og deildarstjórafundum og samstarf við aðra stjórnendur
· Umsjón með aðstöðu, búnaði og hjálpartækjum
· Skipulag og þátttaka í fræðslu starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
· Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
· Góð íslenskukunnátta
· Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
· Góð samskiptafærni og jákvæðni
Fríðindi í starfi
· Stytting vinnuvikunnar
· Heilsustyrkur
· Öflugt starfsmannafélag
Í Ási starfar öflugur og samheldinn hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á gott samstarf, fagleg vinnubrögð, góðan vinnuanda og heimilislegt umhverfi.
Ás er hluti af Grundarheimilunum, þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum. Grundarheimilin starfa eftir Eden-hugmyndafræðinni.
Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraþjálfarafélags Íslands og SFV. Vinsamlegast sendið inn ferilskrá og kynningarbréf með umsókn.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Birna Sif framkvæmdastjóri hjúkrunar birna@dvalaras.is og
Theodóra mannauðsstjóri tedda@grund.is
Birt 27.10.2026
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.
Vegna aukinna verkefna leitar Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. að iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara í ráðgjöf, sölu og þjónustu á hjálpartækjum.
Starfið sameinar einstaklingsmiðaða ráðgjöf, sölu og þjónustu, þar sem viðkomandi nýtir fagþekkingu sína við að aðstoða viðskiptavini við val á hjálpartækjum sem styðja hreyfanleika, sjálfstæði og daglegt líf fólks.
Viðkomandi kemur inn í samheldið teymi reynslumikils fagfólks á heilbrigðissviði og vinnur með viðskiptavinum, samstarfsfólki og erlendum birgjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fagleg ráðgjöf og sala á hjólastólum, vinnustólum, sessum og tengdum búnaði.
• Leiðbeiningar til viðskiptavina um val og notkun hjálpartækja.
• Ráðgjöf og sala á þrýstingsfatnaði, vafningum og aðgerðarfatnaði í samstarfi við teymið.
• Innkaup og samskipti við erlenda birgja.
• Þátttaka í vörukynningum, vinnustofum og vörusýningum.
• Útboðsgerð í samvinnu við teymið.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Gilt íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari.
• Áhugi á hjálpartækjum og hæfni til að tengja þarfir fólks við viðeigandi lausnir.
• Góð samskiptahæfni, nærgætni og skýr framsetning upplýsinga.
• Fagleg, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Reynsla af hjálpartækjum, endurhæfingu eða sambærilegri ráðgjöf er kostur.
• Reynsla af söluráðgjöf er kostur en ekki skilyrði.
Starfið gefur tækifæri til að nýta heilbrigðismenntun í fjölbreyttri ráðgjöf og efla þekkingu á hjálpartækjum og velferðartækni. Meðal samstarfsfólks eru hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni.
Um er að ræða fullt starf á Stórhöfða 25 í Reykjavík. Ráðgjöf til viðskiptavina fer fram á 2. hæð í hlýlegu umhverfi með góðu næði. Vinnutími er að öllu jöfnu milli 8:30-16:30.
Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2026. Ferilskrá með mynd skal fylgja umsókn. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði sem býður fagaðilum og almenningi vandaðar heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Sótt er um starfið á Alfred.is
Birt 22.10.2026
ÞREK Heilsuklínik
Laust herbergi fyrir sjúkraþjálfara hjá ÞREK Heilsuklínik 🚨
Við leitum að metnaðarfullum sjúkraþjálfara til að ganga til liðs við öflugt teymi heilbrigðisstarfsfólks í vaxandi heilsuklíník.
✔️ Lítil-meðalstór stofa
✔️ 3 mánaða biðlisti
✔️ Góð kjör í boði
✔️ Rúmgott og vel útbúið meðferðarherbergi
✔️ Nýr 5-skipta Gymna bekkur
✔️ Aðgengi að gymi og æfingaaðstöðu
✔️ Möguleiki á teymisvinnu
✔️ Sjúkraþjálfarar, Kírópraktorar, Sálfræðingur, Næringarfræðingur og Nuddari.
✔️ Faglegt og jákvætt umhverfi með fjölbreyttum tilvísunum og góðum starfsanda.
✔️ Fullum trúnaði heitið
📩 Hafðu samband við okkur á threk@threk.is fyrir nánari upplýsingar.
Birt 22.10.2026
Ásmegin sjúkraþjálfun
Ásmegin sjúkraþjálfun gæti verið rétti staðurinn fyrir þig. Við leitum að sjálfstæðum, framsæknum og hugmyndaríkum sjúkraþjálfara í 60-100% starfshlutfall sem hefur áhuga á að taka þátt í að móta öfluga þjónustu. Hjá okkur starfa að jafnaði fjórir sjúkraþjálfarar.
Við erum vel staðsett í Ásvallalaug í Hafnarfirði, með góðan tækjasal, gott úrval af tækjum og heilsumiðað umhverfi. Okkar nálgun er heildræn og lögð er áhersla á virkni einstaklingsins og getu hans til að stuðla að eigin bata.
Við erum í samstarfi við Gym-heilsu, Ásvallalaug og Sundfélag Hafnarfjarðar. Starfið felur í sér möguleika á að vinna með hópum, sinna þjálfun í vatni eða þróa þína eigin nálgun.
Hjá okkur færð þú tækifæri til að móta stefnuna, vaxa í starfi og sinna endurmenntun á þeim sviðum sem þú vilt efla. Möguleiki á vaxandi starfshlutfalli og eignarhluta í stofunni.
Hafðu samband
kristinn@asmegin.net
Reykjalundur
Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi sjúkraþjálfara sem starfar á Reykjalundi?
Laus er til umsóknar staða sjúkraþjálfara á Reykjalundi.
Á Reykalundi starfa 8 þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því
fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Í þverfaglegum teymum á
Reykjalundi starfa auk sjúkraþjálfara, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, næringarfræðingar,
íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.
Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
- Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Félags sjúkraþjálfara og SFV (Samtök fyrirtækja í
velferðarþjónustu) auk gildandi stofnanasamnings FS og Reykjalundar.
Upplýsingar um starfið veitir Björg Hákonardóttir sviðsstjóri þjálfunar
bjorg.hakonardottir@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri
gudbjorg@reykjalundur.is
Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
Birt 8.10.2026
Heilsugæslan Kirkjusandi
Sjúkraþjálfari í heilsueflandi móttöku
Heilsugæslan á Kirkjusandi auglýsir eftir sjúkraþjálfara í 10% starf hreyfistjóra í frábæru teymi heilsueflandi móttöku.
Heilsugæslan er einkarekin stöð sem býður upp á góðan starfsanda og góða starfsaðstöðu, en stöðin flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði í 105 Reykjavík, árið 2022.
Í boði er starf á líflegum og ört vaxandi vinnustað þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu við okkar skjólstæðinga ásamt góðri samvinnu milli starfsstétta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starf hreyfistjóra felst í gerð og eftirfylgd hreyfiáætlunar einstaklinga, eftir ávísun á hreyfiseðil. Þetta er unnið í þverfaglegu samstarfi í heilsueflandi móttöku heilsugæslunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi í sjúkraþjálfun
- Þekking eða reynsla af notkun hreyfiseðla er kostur
- Reynsla af sjúkraþjálfun
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Færni í þverfaglegu samstarfi
- Góð almenn tölvukunnátta
Vinsamlega sendið umsókn um starfið, ásamt starfsferilsskrá hér á Alfreð.
Nánari upplýsingar veitir Oddur Steinarsson, framkvæmdstjóri á oddur@hgkirkjusandi.is og í síma 5951300.
Vinnufyrirkomulag og starfskjör samkvæmt samkomulagi.
Heilsugæslan Hlíðum - 20%
Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæslan Hlíðum leitar að metnaðarfullum og áhugasömum sjúkraþjálfara til starfa við hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 20% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Í Hlíðum starfar öflugur hópur sérhæfðs og metnaðarfulls starfsfólks. Við leggjum áherslu á gott og hvetjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska, samstarf og góður starfsandi eru í fyrirrúmi og starfsfólk fær svigrúm til að sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veitir íbúum aðgengilega, samfellda og alhliða heilbrigðisþjónustu. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fagfólks þar sem áhersla er lögð á öflugt þverfaglegt samstarf og sameiginlegt markmið um að stuðla að bættri heilsu og vellíðan í samfélaginu. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
- Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
- Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
- Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
- Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
- Leiðbeinir samstarfsfólki
Hæfniskröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf
- Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari æskileg
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 20%
Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026
Nánari upplýsingar veitir Hildur Svavarsdóttir, Forstöðumaður - hildur.svavarsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5900 Anna Ólafsdóttir, Fagstjóri hjúkrunar - anna.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5900
Sett inn 18. september

