Starfsleyfi í sjúkraþjálfun


Hvernig fæ ég starfsleyfi sem sjúkraþjálfari?

Það er Embætti landlæknis sem veitir starfsleyfi í sjúkraþjálfun og öðrum lögvernduðum heilbrigðisgreinum samkvæmt reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraþjálfara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.
Nánari upplýsingar um hvað þarf til að geta fengið starfsleyfi sem sjúkraþjálfari á Íslandi er því að finna á vefsíðu
Embættis Landlæknis. 



Skilyrði fyrir starfsleyfi í sjúkraþjálfun

Starfsleyfi í sjúkraþjálfun má veita þeim sem lokið hafa MS-prófi í sjúkraþjálfun frá námsbraut í sjúkraþjálfun frá læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.


Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi sjúkraþjálfara fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna.


Umsækjandi um starfsleyfi frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.


Áður en umsókn um starfsleyfi og sérfræðileyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.


Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem sjúkraþjálfari eða sjúkraþjálfari með sérfræðileyfi, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.


Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af sjúkraþjálfara. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.


Starfsleyfi og sérfræðileyfi eru gefin út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.


Hvað ef ég lærði sjúkraþjálfun í öðru landi?

Heimilt er að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.


Fyrir nemendur sem læra sjúkraþjálfun erlendis er mikilvægt að vera viss um að skólinn muni útvega ykkur nauðsynleg skjöl sem þið þurfið til að sækja um starfsleyfi á Íslandi. Þegar sótt er um starfsleyfið er mikilvægt að þessi gögn liggi fyrir:

  • Skírteinisviðauki (e. diploma supplement) þar sem fram á að koma nafn háskóla, háskólagráða og lengd náms, lýsing á náminu í heild, heiti allra námskeiða, fjöldi ECTS eininga, einkunnir og lýsing á menntakerfinu í viðkomandi landi. 

  • Námsskeiðslýsingar (e. course syllabus /course descriptions) þar sem fram á að koma nákvæm lýsing á innihaldi hvers námskeið og hæfniviðmið.

  • Upplýsingar um fjölda klukkustunda og áherslur í klínísku námi.

 

Ef nám umsækjanda um starfsleyfi á Íslandi uppfyllir ekki kröfur um ótímabundið starfleyfi (löggildingu á Íslandi) er líklegt að Embætti landlæknis bjóði viðkomandi upp á svokallaðar uppbótarráðstafanir. Þær eru skilgreindar sem hæfnispróf eða aðlögunartími (tímabundið starfsleyfi þar sem viðkomandi vinnur undir handleiðslu löggilts sjúkraþjálfara til að byrja með).


Umsóknir um starfsleyfi í sjúkraþjálfun frá aðilum sem ljúka námi erlendis fara í mat hjá sértækri nefnd innan Háskóla Íslands í samráði við Embætti Landlæknis.