NDI - Neck Disability Index
Lýsing
Spurningalisti til að meta hálsvandamál. Má nota til að meta breytingar á líðan.
Spurningalistinn er í 10 hlutum: Verkir, hirðing eigin líkama, burður, lestur, höfuðverkur, einbeiting, vinna, akstur, svefn og félagslíf.
Hver hluti er í 6 liðum og sjúklingur merkir við þær fullyrðingar sem hann telur eiga við sig í dag.
Markhópur
Einstaklingar með verki frá hálsi og þeir sem orðið hafa fyrir hálshnykksáverka.
Tími
5-10 mínútur
Útbúnaður
Spurningalisti
Niðurstöður
Stig fyrir hvern hluta eru skoruð á 6-punkta kvarða frá 0 (ekki vandamál) til 5 (ekki mögulegt). Stigin eru lögð saman og getur heildarstigagjöfin verið frá 0 (engin færniskerðing) til 50 (mesta færniskerðing). Því færri stig, þvi minni færniskerðing.
Útreikningur á stigagjöf er í fylgiskjali með listanum.
0 – 8% - engin skerðing
10 – 30% - væg skerðing
32 – 48% - meðal skerðing
50 – 68% - mikil skerðing
>70% - alger skerðing.
Marktæk breyting til batnaðar (MBB): Til að breyting yfir tímabil teljist marktæk þarf hún að vera 5 stig eða 10%.
Heimildir
- Vernon H. (2008) The Neck Disability Index: State of the Art, 1991 - 2008. J Manipulative Physiol Ther. (Sep); 31(7):491 – 502.
- Sterling T. (2005). The Neck Disability Index: Australian J. of Physiotherapy vol.51, 27
Lykilorð
Verkir, háls, whiplash
Spurningalistinn er aðgengilegur hér:

