Standa/setjast 1 mín - One minute sit to stand
Lýsing
Færnipróf. Metur styrk fótleggjavöðva og jafnvægisstjórnun. Nýtist við mat á árangri og markmiðssetningu.
Talið er hve oft einstaklingur getur staðið upp úr stól af staðlaðri hæð og sest aftur niður á einni mínútu.
Ath! Prófið er ekki til formlega þýtt og staðlað á íslensku.
Markhópur
Mismunandi sjúklingahópar, einkum verið notað fyrir baksjúklinga.
Tími
5-10 mínútur
Útbúnaður
Stóll, skeiðklukka.
Heimildir
- Harding VR, Williams A C De C, Richardson PH, et al (1994) The development og a battery of measures for assessing physical functioning of chronic pain patients Pain 58, 367-375
- One minute sit to stand – breska sjúkraþjálfarafélagið
- Rejse-satte-sig-test - danska sjúkraþjálfarafélagið
Lykilorð
Styrkur, færni, jafnvægi

