Functional Reach (FR) - Seiling


Lýsing

Jafnvægispróf sem metur hversu langt þátttakandinn er reiðubúinn að hreyfa þungamiðju líkamans að fremri mörkum undirstöðuflatar síns.


Markhópur

Einstaklingar með jafnvægistruflun, inniliggjandi eða á göngudeild

Tími

1-2 mínútur


Útbúnaður

Mælistika með hallamáli, veggpláss, franskur rennilás eða límband


Niðurstöður

Niðurstaða á prófinu er mæld í sentimetrum. Því hærri sem sú tala er því viljugri er þátttakandinn til að hreyfa þungamiðju líkamans að fremri mörkum undirstöðuflatar síns. Seiling upp á 15,24 cm eða minna spáir fyrir um fall. 

Heimildir

  • Duncan PW, Weiner DK, Chandler J & Studenski S. Functional Reach: A New Clinical Measure of Balance. Journal of Gerontology: MEDICAL SCIENCES 1990;45(6):M192-197.



Lykilorð

Jafnvægi, færni


Prófið er aðgengilegt hér:

Seiling