Alberta Infant Motor Scale (AIMS)
Lýsing
Grófhreyfiþroskapróf sem ætlað er að greina seinkun / frávik í hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 0 til 18 mánaða. Niðurstöður eru gefnar í hundraðsröð meðal jafnaldra
Það nýtist til að greina frávik og/eða seinkun í hreyfiþroska ungbarna, meta framfarir í hreyfingum og til leiðbeiningar við gerð þjálfunaráætlunar. Hreyfingar barnsins eru skoðaðar og greindar í fjórum mismunandi stöðum; baklegu, magalegu, sitjandi og standandi. Þær eru merktar inn á sérstakt eyðublað.
Höfundar: Piper, M.C. og Darrah, J.
Markhópur
Ungbörn á aldrinum 0-18 mánaða - þar til börnin fara að ganga
Próffræðilegir eiginleikar
Sjá handbók
Útbúnaður
Bókin og sérstök eyðublöð.
Dýna, leikföng sem henta börnum á aldrinum 0-18 mánaða, bekkur eða lágt borð til að barnið geti togað sig upp í standandi stöðu og gengið meðfram, eyðublað og línurit (graf).
Tími
20-30 mínútur
Tegund skoðunar
Horft er á börnin (observation). Lýsing á framkvæmd prófsins er í handbók.
Íslensk þýðing
Nei
Kostnaður
Kaupa þarf handbók og eyðublöð
ICF vídd
Athafnir og líkamsstarfsemi (eitt atriði)
Niðurstöður
Eru gefnar sem hundraðsröð miðað við jafnaldra fyrir fullbura eða leiðréttan aldur sé um fyrirbura að ræða.

