CSI - The Central Sesitization Inventory


Lýsing

Spurningalisti til að meta miðlæga næmni


CSI er staðlaður sjálfsmatslisti sem samanstendur af 25 spurningum sem nota má til að meta alvarleika miðlægrar verkjanæmni (central sensitization pain, CSP). Listinn aðstoðar fagaðilann við að bera kennsl á skjólstæðinga með einkenni sem gætu tengst miðlægri verkjanæmingu eins og t.d. vefjagigt, hálsáverka, TMJ disorder, mígreni o.fl.

Markhópur

Fólk með langvinna verki.

Tími

10-12 mínútur


Útbúnaður

Spurningalisti


Niðurstöður

Hver spurning er metin á fimm punkta kvarða (0-4, 0=aldrei, 1=sjaldan, 2=stundum, 3=oft, 4=alltaf). Heildarstig samanlagðra punkta gefa vísbendingu um hversu alvarleg miðlæg verkjanæmni er.

Óveruleg: 0-29
Mild: 30-39
Miðlungs: 40-49
Alvarleg: 50-59
Mjög alvarleg: 60-100


Heimildir

  • Mayer, T. G., R. Neblett, H. Cohen, K. J. Howard, Y. H. Choi, M. J. Williams, Y. Perez, and R. J. Gatchel. "The Development and Psychometric Validation of the Central Sensitization Inventory." [In eng]. Pain Pract 12, no. 4 (Apr 2012): 276-85. https://doi.org/10.1111/j.1533-2500.2011.00493.x.


Lykilorð

Miðlæg næmni, verkir, verkjanæmni


Prófið er aðgengilegt hér:

CSI