Barry-Albright Dystonia Scale (BAD)


Lýsing

Kvarði til að mæla almenna dystoniu (breytilega vöðvaspennu) í börnum.


Hann hentar ekki eins vel til að mæla staðbundna dystoniu. Dystonia er vöðvasamdráttur sem veldur snúningshreyfingum, endurteknum hreyfingum og/eða stellingum.

Stig eru gefin eftir að barn hefur verið skoðað og horft á myndbandsupptöku af því. Horft er á hreyfingar eða stöður á eftirfarandi líkamshlutum eru skoðaðir: augum, munni, bol, báðum handleggjum og fótum (8 líkamssvæði)



Höfundar: Barry MJ, VanSwearingen JM, Albright AL. Reliability and responsiveness of the Barry-Albright dystonia scale. Dev. Med. Child Neurol 1999; 41: 404-411



Markhópur

Börn með almenna dystoniu.


Útbúnaður

Eyðublað til að merkja við stig.


Niðurstöður

Fimm þrepa kvarði (0-4) fyrir hvern líkamshluta þar sem 0 er engin dystonia en 4 er mikil dystonia.