Gross Motor Function Classification System Expanded and Revised GMFCS-ER


Lýsing

Aukin og endurskoðuð flokkun á grófhreyfifærni barna með CP.


Flokkun á grófhreyfifærni barna með CP. Grófhreyfifærni er metin og útkoma ásamt aldri barns ákvarðar í hvaða færniflokk af fimm mögulegum barnið lendir í. Flokkunin byggist á virkum hreyfingum barnanna og er lögð sérstök áhersla á að meta setstöðu, færslu úr einni stöðu í aðra og á milli staða. Börn með minnstu skerðingu eru með færni í flokki I en flokkur V lýsir börnum sem hafa afar takmarkaða getu til að koma sér um sjálf þrátt fyrir notkun hjálpartækja. Flokkunin hefur forspárgildi um þróun hreyfiþroska barnsins í framtíðinni þar sem sjaldgæft er að sami einstaklingur færist upp/niður um flokka.

Aukin útgáfa af flokkuninni (2007) inniheldur aldursbil fyrir börn og unglinga 12-18 ára. Megintilgangur með flokkun á grófhreyfifærni er að finna út hvaða flokkur á best við núverandi getu og skerðingu (limitations) barnsins eða unglingsins í grófhreyfingum. Áhersla er lögð á að venjubundna frammistöðu barnanna heima, í skóla og úti í samfélaginu (þ.e. hvað þau gera), fremur en það sem er vitað að þau geta gert þegar þau eru í sínu besta formi (hvað þau geta).


Höfundar:

  • Palisano, R., Rosenbaum, P., Walter, S., Russell, D., Wood E., & Galuppi, B http://www.canchild.ca/en/measures/gmfcs.asp  (Heimasíða kanadískrar rannsóknarstofnunar: CanChild) 
  • Palisano, R., Rosenbaum, P., Walter, S., Russell, D., Wood, E., & Galuppi, B. (1997). Development and reliability of a system to classify gross motor function in children with cerebral palsy. Developmental Medicine and Child Neurology, 39, 214-223 
  • Þýtt á íslensku: Björg Guðjónsdóttir sjúkraþjálfari. Hægt er að nálgast flokkunarkerfið hjá henni thbjorg@hi.is  



Markhópur

Börn og unglingar með CP.


Útbúnaður

Blað sem inniheldur lýsingu á flokkunum. Tími: Það er ljóst eftir fyrstu skoðun á barninu í hvaða flokki grófhreyfifærnin liggur. Niðurstöður: Segir til um í hvaða flokki grófhreyfifærni hvers barns liggur sem gefur upplýsingar um þörf fyrir þjálfun, þjónustu og um stöðu barnsins í framtíðinni. 


Tími

Um 5 mínútur


Niðurstöður

Stig eru lögð saman og umreiknuð í prósentur frá (engin einkenni) upp í 100 (mjög mikil einkenni). Hámarksstig eru 75. Prósenta færniskerðingar = (heildarstig/75) x 100. Ef þátttakandi sleppir spurningum eru 3 dregnir frá 75 fyrir hverja spurningu sem ekki er svarað við útreikningana. Dæmi: Sleppir 3 spurningum er deilt með 66 (heildarstig/66) x 100.


Heimildir

Elín Rós Jónasdóttir og Sigrún Ása Arngrímsdóttir MS ritgerðir- grein í skrifum


Stuge, B., Garratt, A., Krogstad Jenssen, H. og Grotle, M. (2011). The pelvic girdle questionnaire: a condition-specific instrument for assessing activity limitations and symptoms in people with pelvic girdle pain. Physical Therapy, 91(7), 1096-1108.


Grotle, M., Garratt, A. M., Krogstad Jenssen, H. og Stuge, B. (2012). Reliability and construct validity of self-report questionnaires for patients with pelvic girdle pain. Physical therapy, 92(1), 111-123.


Lykilorð

Mjaðmagrind, verkir, kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfun


Ábyrgðaraðili

Dr. Þorgerður Sigurðardóttir
netfang: th.sigurdardottir@gmail.com


Prófið er aðgengilegt hér:

Spurningalisti um mjaðmagrind (íslensk útgáfa)