Bruininks-Oseretsky Test of Motor Proficiency (BOT-2)
Lýsing
Próf til að meta hreyfifærni barna og ungmenna. Það er notað til að bera hreyfigetu barns saman við getu jafnaldra og við gerð þjálfunaráætlunar. Prófið skiptist í átta undirþætti:nákvæmni fínhreyfinga,
- Nákvæmni fínhreyfinga
- Samhæfingu sjónar og handa
- Fimi handa
- Samhæfingu milli hægri og vinstri hliða líkama
- Jafnvægi
- Hlaupahraði og snerpa
- Samhæfingu milli handleggja og
- vöðvastyrk.
Höfundar: Bruininks, R.H., Bruininks, B.D. (2005) BO2 Bruininks-Oseretsky Test of Motor Proficiency, second edition. Manual. Minneapolis MN: NCS Pearson Inc.
Markhópur
Börn og ungmenni á aldrinum 4 ára til 21 árs.
Útbúnaður
Próftæki fylgja með; þ.e. jafnvægisslá, bolti, spil, kubbar, teikniverkefni o.s.frv. einnig handbækur, prófhefti, DVD kennsludiskur og BOT-2 ASSIST tölvuforrit til að reikna úr niðurstöður.
Próftími
45-60 mínútur
Niðurstöður
Hægt er að reikna út úr prófinu á þrjá vegu;
- Getu fyrir hvern ofangreindan undirþátt fyrir sig. Þar sem BOT–2 nær yfir vítt svið fín- og gróhreyfifærni er líka hægt að reikna út
- Heildarstig fyrir hreyfisviðin fjögur. Þessi svið eru: fínhreyfistjórn handa, samhæfing handa, samhæfing í líkama og styrkur/snerpa.
- Að lokum er hægt að reikna út heildarstig fyrir allt prófið.
Prófið er staðalbundið (norm-referenced). Niðurstöður eru m.a. gefnar í mælitölum, hundraðsröð og á hvaða aldri barnið er í hreyfigetu.

