Goal Attainment Scale
Lýsing
Kvarði sem getur metið hversu vel hefur gengið að framfylgja markmiðum sem sett voru fyrir meðhöndlunina.
Kvarðinn er einstaklingsmiðaður og mjög einfaldur matskvarði sem skipt er í 5 stig; frá miklu betur en búist var við (2+) til miklu verr en búist var við (2-) og þar á milli markmiðum náð (0) á miðju skalans. Sjúklingurinn velur sjálfur og setur sér 3-5 áhersluatriði fyrir meðhöndlun og fyrir hvert þessara atriða eru sett sértæk markmið.
Markhópur
Ekki bundið við neinar ákveðnar sjúkdómsgreiningar heldur er hægt að nota hann alls staðar þar sem þjálfun fer fram.
Ekki notað hér ennþá skv. okkar upplýsingum.
Lykilorð
Markmið, sjálfsmat.
Heimildir
Kiresuk T, Sherman R (1968). Goal Attainment Scaling: a general measure of evaluating comprehensive mental health programs Community Mental Health Journal 4,443-453.

