Stepping test


Lýsing

Prófið metur jafnvægi og er oft nefnt Fukuda Stepping test.


Einstaklingur stendur berfættur á krossi sem er merktur á gólfið og handleggjum er haldið lárétt út frá bol. Augum er lokað og gengið á staðnum með háum hnélyftum í 30 sekúndur. Skráður er snúningur og/eða frávik frá upphafsstöðu. Einnig er skráð tilhneiging til að detta og í hvaða átt. 


Ath! Prófið er ekki formlega þýtt og staðlað á íslensku.


Markhópur

Einstaklingar með jafnvægistruflanir.



Tími

1 mínúta.


Útbúnaður

Kross merktur á gólfi.

Skeiðklukka eða úr með sekúnduvísi.


Niðurstöður

Einstaklingur með ósamhverfu í starfsemi jafnvægiskerfis innra eyra hefur tilhneigingu til að snúast í átt að eyra með skerta starfsemi. Tilhneiging til að detta aftur á bak getur bent til skerðingar í miðtaugakerfi.


Heimildir

  • Fukuda, T. (1959).The stepping test: two phases of the labyrinthine reflex. Acta Otolaryngol. vol.50(2).95-108.


Lykilorð

Jafnvægi, innra eyrað