Tardieu Scale


Lýsing

Mæliaðferð til að skrá aukna vöðvaspennu (spastisitet). Notað í skoðun til að meta hvort til staðar sé ábending fyrir botoxmeðferð.


Liður er hreyfður passíft eins hratt og mögulegt er og hraðahindrun (R1) er staðsett með liðmæli. Hreyfingunni er síðan haldið áfram, ef mögulegt er, eftir hraðahindrunina og lokastaða (R2) staðsett. Ákjósanlegt er að tveir einstaklingar mæli hreyfinguna saman og/eða að notuð sé myndbandsupptaka og liðferlar mældir.


Markhópur

Börn með CP


Próftími

Misjafnt eftir einstaklingum


Útbúnaður

Liðmælir (goniometer).

Niðurstöður

R2-R1 = gefur upplýsingar um teygjanleika í vöðvanum. 
Ábending um notkun Botox er samkvæmt Boyd þegar R2-R1 > 10-15°.
Mæliaðferðin er t.d. notuð á Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.


Heimildir

  • R.N.Boyd et.al. (1999). “Objective measurement of clinical findings in the use of botulinum toxin A for the management of children with cerebral palsy” E. J. of Neurology 6 (suppl 4). 



Lykilorð

Spastisitet, vöðvaspenna