Timed Up & Go (TUG) - Tímamælt "upp og gakk" próf


Lýsing

Prófið metur þá grunnhreyfifærni sem nauðsynleg er til að ráða við ýmsar daglegar athafnir.


Mæld er út þriggja metra löng braut sem hefst við fremri stólfætur. Endinn á brautinni er merktur með breiðu límbandi. Einstaklingurinn situr í stólnum og við fyrirmæli gengur hann út að enda brautarinnar, snýr við, gengur til baka og sest aftur í stólinn. Mældur er sá tími sem það tekur einstaklinginn að framkvæma prófið.

Það líkist öðru prófi sem nefnist “Get up and go test” en í stað þess að gefa einkunn eftir getu sjúklings er sjúklingur metinn eftir þeim tíma sem það tekur hann að framkvæma prófið.


Markhópur

Prófið er hagnýtt til að meta líkamlega getu eldri veikburða einstaklinga.

Tími

5-10 mínútur.


Útbúnaður

Armstóll (hæð setu 46 sm), málband, breitt límband og skeiðklukka.


Niðurstöður

Niðurstöður á prófinu er tími í sekúndum. Því lægri sem sú tala er því betri er grunnhreyfifærni einstaklingsins.

Heimildir

  • Podsiadlo D & Richardson S. The Timed "Up & Go": A Test of Basic Functional Mobility for Frail Elderly Persons. JAGS. 1991;39:142-148


Lykilorð

Styrkur, jafnvægi, færni.


Prófið er aðgengilegt hér:

TUG