EMS - Hreyfifærnikvarði
Lýsing
Einfalt mat sem gefur mynd af hreyfifærni veikburða, eldra fólks sem á orðið erfitt með daglegar athafnir.
Þetta próf metur eftirfarandi þætti:
- frá liggjandi í sitjandi stöðu
- úr sitjandi í liggjandi stöðu
- úr sitjandi í standandi stöðu
- jafnvægi í standandi stöðu
- jafnvægi í göngu
- gönguhraða.
- seilingu
Það metur þannig ýmsa grunnþætti hreyfinga sem nauðsynlegar geta talist í daglegri færni. Hæsta mögulega skor úr öllum þáttum prófsins er 20 en lægsta skor er 0.
Markhópur
Aldraðir með skerta hreyfifærni
Tími
5-10 mínútur
Útbúnaður
Bekkur/rúm, mælistika, stóll með örmum, skeiðklukka, 6-8 metra sléttur gólfflötur og veggpjálss.
Heimildir
- Smith R. Validation and reliability of the Elderly Mobility Scale. Physiotherapy 1994; 80(11): 744-7.
- Prosser L, Canby A. (1997). Further validation of the Elderly Mobility Scale for measurement of mobility of hospitalized elderly people., Clin Rehabil.Nov;11(4):338-43.
- Spilg, E. G., B. J. Martin, et al. (2001). A comparison of mobility assessments in a geriatric day hospital. Clin Rehabil 15(3):296-300.
Lykilorð
Færni, gönguhraði, jafnvægi
Prófið er aðgengilegt hér:

