Leiðbeiningar til höfunda - Almennar fræðslugreinar
Leiðbeiningar til greinarhöfunda Sjúkraþjálfarans, fagtímarits FS. Leiðbeiningar þessar eiga ekki við um ritrýndar greinar sem fara í gegnum faglega ritnefnd.
Greinarhöfundar eru vinsamlega beðnir að athuga að eftirfarandi atriði komi fram:
- Greinum skal skila á tölvupósti til meðlims ritnefndar eða ritstjóra.
- Að skila inn passamynd. Svarthvít eða í lit skiptir ekki máli. Athugið að allar myndir til birtingar þurfa að vera í sæmilegum gæðum. Miðum við að passamyndir séu a.m.k 300dpi miðað við raunstærð.
- Að tilgreina nafn, starfsheiti og starfsstað. Þær upplýsingar eru hafðar undir passamyndinni.
- Að skila inn myndefni með greininni. T.d. úr bókum, bæklingum, eigin myndir og fleira. Myndir þurfa að vera á .jpeg formi, og í nægilegri stærð.
- Velja texta undir myndefnið og tilgreinið við hvaða mynd hvaða texti á.
- Ef greininni er skipt niður með millifyrirsögnum er æskilegt að greinin byrji á inngangi og síðan komi millifyrirsögn. Byrja aldrei greinar á millifyrirsögn.
- Að standa við settan skilatíma á efni.
- Að halda sig innan þess ramma sem er gefinn á lengd greinarinnar.
- Að láta vinnufélaga eða óháðan aðila lesa yfir greininna áður en henni er skilað til að leiðrétta málfræði og gagnrýna greinina m.t.t. efnistaka og fleira.
- Að skrifa á íslensku, og nota íslenska fagorð þar sem við á. (erlenda orðið fylgi í sviga á eftir ef þarf). Titill á grein á að vera á íslensku nema undantekningartilfellum. Höfundar sem ekki hafa íslensku að móðurmáli geti þó skilað inn greinum á ensku.
- Ritnefnd áskilur sér rétt til að prófarkalesa aðsent efni og leiðrétta málfar og stafsetningu.
- Efnisinnihald er á ábyrgð höfundar.
Lengd greina:
- Grein á einni síðu með passamynd: Orðafjöldi: uþb. 700-800 orð.
- Grein á einni síðu með passamynd og einni mynd: Orðafjöldi 500-600 orð.
- Grein á tveimur síðum með passamynd: Orðafjöldi: uþb. 1500-1600 orð.
- Grein á tveimur síðum með passamynd og 2 myndum: Orðafjöldi: 1300-1500 orð.
(Uppfært í desember 2025)

