Peabody Developmental Motor Scales (PDMS-2)


Lýsing

Próf notað til að meta gróf- og fínhreyfigetu barna frá 0 til 72 ja mánaða.


Prófið er notað til að meta gróf- og fínhreyfigetu barna frá 0 til 72 ja mánaða. Það er hannað til að meta gróf- og/eða fínhreyfiþroska miðað við jafnaldra, til að meta frávik og aðstoða meðferðaraðila við gerð þjálfunaráætlunar. Grófhreyfihluti prófsins skiptist í þrjá undirþætti; jafnvægi og stöðugleika, hreyfingu úr stað og boltafærni. Fínhreyfihluti prófsins skiptist í tvo undirþætti; grip og samhæfingu sjónar og handa.


Höfundar:

  • M. Rhonda Folio og Rebecca R: Fewell.


Próftími

45-60 mínútur


Útbúnaður

Próftæki fylgja bókunum. Tölvuforrit til að reikna út niðurstöður fæst keypt. (sjá slóðina; www.proline.com )


Niðurstöður

eru gefnar í hreyfiþroskatölum og hundraðsröð miðað við jafnaldra. Reiknaðar eru út niðurstöður fyrir fínhreyfiþroska sér, fyrir grófhreyfiþroskan og síðan heildarniðurstaða. Ef mikill munur er á milli gróf- og fínhreyfiþroska hjá barninu, ber að sleppa heildarniðurstöðu þar sem hún hefur takmarkað gildi.


Þýðing

Leiðbeiningar og fyrirmæli hafa verið þýdd á íslensku af sjúkraþjálfurunum: Önnu Guðnýju Eiríksdóttur, Áslaugu Guðmundsdóttur og Björgu Guðjónsdóttur. Þau er hægt að nálgast hjá Björgu Guðjónsdóttur ( thbjorg@hi.is ).