30 metra göngupróf
Lýsing
Próf sem metur gönguhraða og öryggi einstaklings að snúa við á göngu.
Tekinn er tími meðan þátttakandi gengur 15 m vegalengd fram og til baka. Fyrst á hraða sem hann velur sjálfur, en síðan eins hratt og hann getur.
Ath! Prófið er ekki til formlega þýtt og staðlað á íslensku.
Markhópur
Ýmsir sjúklingahópar, m.a. lungna-, tauga-, krónískir verkjasjúklingar og aldraðir.
Tími
10-15 mínútur.
Útbúnaður
Greiðfær rúmlega 15 metra langur gangur, skeiðklukka og límband.
Heimildir
- I.S. Kwon, Oldaker S., Schrager M., Talbot L.A., Fozard J.L., Metter E.J. (2001). Relationship between muscle strength and the time taken to complete a standardized walk-turn-walk test. J Gerontol A Biol Sci Med Sci.56(9): B398-404.
Lykilorð
Gönguhraði, færni, þol, þolpóf
Prófið er aðgengilegt hér:

