Movement ABC
Lýsing
Hreyfipróf sem notað hefur verið til skimunar, til markmiðsetningar í þjálfun og til að meta árangur meðferðar.
Movement Assessment Battery for Children - 2 (Movement ABC-2) er hreyfipróf sem notað hefur verið til skimunar, til markmiðsetningar í þjálfun og til að meta árangur meðferðar. Prófið skiptist í þrjá megin undirþætti:
- Leikni handa, 3 atriði
- Samhæfingu fínhreyfinga; grípa og kasta, 2 atriði.
- Jafnvægis í kyrrstöðu og á hreyfingu, 3 atriði.
Höfundar:
- Barnett, Henderson & Sugden, 2007.
Markhópur
Börn á aldrinum 3-16 ára
Útbúnaður
Prófið samanstendur af stöðluðu prófi (MABC Test) og gátlista (MABC checklist). Hægt er að nota hvort fyrir sig eða saman. Prófinu fylgja eyðublöð fyrir þrjú aldursbil og taska með hlutum sem notuð eru við prófunina.
Próftími
20-40 mínútur
Niðurstöður
Prófið er staðalbundið og niðurstöður eru gefnar í hundraðsröðun og stöðluðum tölum fyrir aldursbil barnsins.

