Åstrand hjólapróf
Lýsing
Þolpróf á þrekhjóli.
Prófið er notað til að fá út þoltölu einstaklings og er mjög auðvelt í framkvæmd. Þoltala er reiknuð út frá submaximal álagi (wött), púlsi, aldri, kyni og þyngd.
Óvissuþáttur við þessa mælingu er meðal annars sá að gengið er út frá ákveðnum aldursviðmiðuðum hámarkspúlsi.
Markhópur
Prófið er hægt að nota fyrir alla nema þá sem hafa hjarta- eða lungnasjúkdóma eða taka lyf sem hafa áhrif á hjartsláttartíðni. Hentar bæði á göngudeildum og fyrir inniliggjandi endurhæfingarsjúklinga.
Tími
Prófið tekur 6 mínútur í framkvæmd ásamt undirbúningstíma.
Útbúnaður
Þrekhjól, skeiðklukka, púlsmælir (ekki nauðsyn).
Niðurstöður
Á heimasíðu
Motion-online er að finna upplýsingar um prófið og hvernig reikna skal út þoltölu.
Lykilorð
Þol, þolpróf
Prófið er aðgengilegt hér:

