Fastanefndir Félags sjúkraþjálfara


Fastanefndir FS eru: Fagnefnd, fræðslunefnd, ritnefnd, fræðileg ritstjórn, heimasíðunefnd, siðanefnd, skemmtinefnd, uppstillinganefnd og stjórn Vísindasjóðs félagsins.


Fulltrúar allra nefnda utan fræðilegrar ritstjórnar skulu kosnir á aðalfundi. Fulltrúar í fræðilegri ritstjórn skulu skipaðir af stjórn.


Siðanefnd skal skipuð þremur félagsmönnum og einum til vara sem ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Kjósa skal í nefndina einn mann á ári til þriggja ára. Úr nefndinni skal ganga einn maður á ári. Varamann skal kjósa til þriggja ára, en hann skal þó ekki sitja lengur en sex ár. Starfsreglur siðanefndar skulu samþykktar af aðalfundi.


Stjórn Vísindasjóðs skal skipuð þremur félagsmönnum og einum til vara. Stjórnina skulu skipa sjúkraþjálfarar sem hafa reynslu af rannsóknum. Kosið skal í stjórn einn mann á ári til þriggja ára. Úr stjórninni skal ganga einn maður á ári. Varamann skal kjósa til þriggja ára, en hann skal þó ekki sitja lengur en sex ár.


Starfsreglur Vísindasjóðs og siðareglur félagsins skal endurskoða að lágmarki þriðja hvert ár og breytingar á þeim skulu samþykktar af aðalfundi félagsins.Starfsreglur annarra nefnda skulu samþykktar af stjórn.


Starfsreglur nefnda Félags sjúkraþjálfara

Kosið er árlega í allar nefndirnar á aðalfundi. Siðanefnd og stjórn vísindasjóðs hafa þó sér reglur um setu í nefndunum og varamenn. Á fyrsta fundi skulu nefndirnar kjósa sér formann sem er ábyrgur fyrir fundarboðum og ritara sem skrifar fundargerð fyrir hvern fund og skrifar ársskýrslu fyrir aðalfund.


Í fagnefnd sitja að jafnaði fjórir einstaklingar. Hlutverk nefndarinnar er margvíslegt, m.a. að styrkja félagið inn á við, fræða aðrar heilbrigðisstéttir og sjá um ýmis kynningarmál fyrir almenning.Í fræðslunefnd sitja fimm einstaklingar. Nefndin sér um og heldur mörg metnaðarfull og fjölbreytt námskeið. Nefndin vinnur eftir starfsreglum sem samþykktar eru af stjórn félagsins


Ritnefnd skipa valdir vinnustaðir sem taka að sér útgáfu blaðisins eitt ár í senn. Starfsár nefndarinnar er almanaksárið og gefur nefndin út tvö blöð, að vori og hausti. Ritnefnd er í sambandi við Fræðilega ritnefnd, sem sér um ritrýnt efni blaðsins.


Í siðanefnd sitja þrír einstaklingar og einn varamaður. Skv. lögum FS skal einn ganga út nefndinni á tveggja ára fresti og skal það vera sá sem setið hefur lengst. Hlutverk siðanefndar er m.a. að fjalla um mál sem tilkynnt eru til félagsins, endurskoða siðareglurnar og fylgjast með þróun siðareglna hjá erlendum fagfélögum.


Í uppstillingarnefnd sitja þrír einstaklingar og er hlutverk þeirra að veita þeim fjölmörgu sjúkraþjálfurum sem sækja í nefndarstörf félagsins upplýsingar um nefndirnar og finna hverjum og einum sinn farveg. Í þeim fáu tilfellum sem illa gengur að manna nefndirnar sér uppstillingarnefnd um að veita smá hvatningu þar sem það á við.



Í stjórn Vísindasjóðs sitja þrír einstaklingar og tveir varamenn. Skv. lögum FS skal kosið í stjórnina á þriggja ára fresti. Sjóðurinn vinnur eftir starfsreglum sem samþykktar eru af stjórn félagsins.


Skv lögum FS, samþykktum á aðalfundi 27. mars 2014