Lög Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu


Samþykkt á aðalfundi FSÖ, þann 27. mars 2014


1.grein – Heiti félagsins

Heiti félagsins er Félag sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu, er skammstafast, FSÖ. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík.


2.grein – Markmið félagsins

Markmið félagsins eru:

  1. Fagleg:
  2. Stuðla að fræðslu og forvarnarstarfi í þágu eldra fólks.
  3. Stuðla að framhaldsmenntun, símenntun og rannsóknum í sjúkraþjálfun aldraðra.
  4. Taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.

  5. Félagsleg:

Efla samskipti milli sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu.


3.grein – Félagar

Löggiltir sjúkraþjálfarar innan FS geta orðið félagar. Sótt er um inngöngu skriflega með tölvupósti til stjórnar. Úrsögn úr félaginu skal á sama hátt vera skrifleg með tölvupósti.


4.grein – Félagsgjöld

Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi. Gjalddagi skal vera þann 15.maí ár hvert. Fullt árgjald skal greiða þótt um hluta úr ári sé að ræða.


5.grein – Aðalfundur

Aðalfund skal halda eigi síðar en 15.apríl ár hvert. Aðalfund skal boða í tölvupósti með tveggja vikna fyrirvara. Þeir sem óska sérstaklega eftir því, geta fengið fundarboð sent bréfleiðis.


Dagskrá aðalfundar skal vera:

  • Skýrsla stjórnar.
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar.
  • Ákvörðun félagsgjalda.
  • Lagabreytingar.
  • Stjórnarkjör.
  • Kosning skoðunarmanns reikninga.
  • Önnur mál.


6.grein – Atkvæðisréttur

Atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagar. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum.


7.grein – Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skal kosin til eins árs og vera skipuð fimm félögum, formanni, ritara, gjaldkera og 2 meðstjórnendum. Formaður skal kosinn sérstaklega og er hann jafnframt fulltrúi félagsins í IPTOP. Aðrir stjórnarmenn skulu skipta með sér verkum að loknum aðalfundi.


8.grein – hlutverk stjórnar

Hlutverk stjornar er að vinna að framgangi markmiða félagsins, og fylgja eftir lögum þess og samþykktum. Stjórn boðar aðalfund og hún getur einnig boðað til annarra funda ef með þarf. Starfsemi félagsins er að öðru leyti í höndum félagsmanna.


9.grein – Öldrunarráð

FSÖ er aðili að Öldrunarráði. Stjórn skipar fulltrúa sinn á þeim vettvangi.


10.grein – Lagabreytingar

Lögum þessum verður aðeins breytt með samþykki að minnsta kosti tveggja þriðju hluta atkvæðisbærra fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu vera skriflegar, og skulu hafa borist stjórn þremur vikum fyrir aðalfund.


11.grein – Gildistaka

Lög þessi öðlast gildi þegar þau hafa verið samþykkt á aðalfundi félagsins. Reykjavík, 27.03.2014