2027 Námskeið
Nútímanálgun á greiningu og meðhöndlun axlarvandamála
Kennari: Dr. Kári Árnason, sjúkraþjálfari, sérræðingur í bæklinuarsjúkraþjálfun og lektor við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
Dagsetning: 26.-27. febrúar 2027
Tímasetning: Tilkynnt síðar
Staðsetning: Tilkynnt síðar
Verð:
Fagdeild snemmskráning - 95.000 kr
Fagdeild almennt verð - 105.000 kr
Almennt verð - 130.000 kr
Á þessu tveggja daga námskeiði verður fjallað um nútímanálgun á greiningu og meðhöndlun axlarvandamála. Áhersla verður lögð á blöndu af fræðilegri og verklegri kennslu með það að leiðarljósi að þátttakendur auki kunnáttu sína og sjálfstraust varðandi greiningu og meðhöndlun axlarvandamála.
Þátttakendur munu m.a. læra:
- Gagnreyndar aðferðir til að greina og meðhöndla algeng axlarvandamál líkt og subacromial verki, sinamein og -áverka, óstöðugleika og frosna öxl. Sérstök áhersla verður lögð á hagkvæma heilbrigðisþjónustu við meðferð.
- Skilvirkar leiðir til að auka og viðhalda axlarheilsu.
- Hvernig grunnatriði í atferlisfræði geta hjálpað sjúkraþjálfurum til að hámarka líkur á árangri í meðferð.
- Hvenær æskilegt sé að beita mjúkvefjameðferð og liðlosun í meðhöndlun axlarvandamála.
- Helstu ábendingar fyrir myndgreiningu.
- Hvort og ef svo hvenær aukinn vöðvastyrkur skiptir máli til að minnka axlarverki.
- Veikleika og þarfagreiningu hjá líkamlega virkum skjólstæðingum.
Um kennarann:
Dr. Kári Árnason er sérfræðingur í bæklunarsjúkraþjálfun og lektor við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Kári starfar einnig sem sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Íslands þar sem hann sérhæfir sig í meðhöndlun axlarvandamála ásamt því að vera teymisstjóri axlarteymis stofunnar. Doktorsrannsókn hans fjallaði um áhrifaþætti axlarmeiðsla hjá handboltaleikmönnum en Kári var sjúkraþjálfari U21 landsliðs karla í handbolta frá 2021-2025 og starfar í dag með karlaliði FH í handbolta. Kári er einnig virkur í rannsóknum, hefur birt vísindagreinar í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum og kemur reglulega fram á innlendum og erlendum ráðstefnum. Kári hefur að auki starfað sem ráðgefandi sjúkraþjálfari fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 2016 og ferðast með sveitinni á tónleikaferðalög erlendis.

