Starfsreglur Vísindasjóðs Félags sjúkraþjálfara
Samþykktar á aðalfundi FS, 3. apríl 2025
1. Heiti sjóðsins og varsla
1.1. Sjóðurinn heitir Vísindasjóður Félags sjúkaþjálfara (FS). Hann er í vörslu gjaldkera félagsins.
2. Markmið Vísindasjóðs
2.1. Markmið Vísindasjóðs eru að styrkja rannsóknarverkefni, þróunarverkefni og viðamiklar ritsmíðar og þýðingar
á viðurkenndum mælitækjum og spurningarlistum innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni/rannsóknir skulu
framkvæmdar af sjúkraþjálfurum, hafa faglegt gildi innan sjúkraþjálfunar og vera faginu til framdráttar.
2.2. Markmið Vísindasjóðs er einnig að stuðla að prófun mælitækja /spurningalista hérlendis að þýðingu lokinni.
Ljóst er að þýðing mælitækja/spurningalista er mikilvægt fyrsta skref til að auka möguleika íslenskra sjúkraþjálfara
á notkun viðurkenndra tækja við mat/endurmat skjólstæðinga. Prófun þeirra er hins vegar forsenda þess að ný eða
þýdd mælitæki gagnist sem skyldi.
3. Stjórn Vísindasjóðs
3.1. Stjórn Vísindasjóðs er skipuð á aðalfundi samkvæmt lögum FS, 12. grein.
3.2. Stjórn Vísindasjóðs skal halda fundargerðarbók.
4. Tekjur og gjöld Vísindasjóðs
4.1. Tekjur Vísindasjóðs eru eftirfarandi:
4.1.1. Lögbundin framlög til Vísindasjóðs samkvæmt lögum FS, 17. grein.
4.1.2. Frjáls framlög velunnara sjóðsins.
4.1.3. Ágóði af degi sjúkraþjálfunar skal renna í Vísindasjóð FS.
4.2. Gjöld vísindasjóðs er tengjast umsýslukostnaði (t.a.m. póstburðargjöld, bréfsefni, umslög, rafrænar undirritanir
og símakostnaður) greiðast af rekstrarfé Félags Sjúkraþjálfara. Vegna umfangsmeiri kostnaðar þarf sérstakt
samþykki stjórnar FS.
5. Umsóknir um styrki
5.1. Umsóknum um styrki sem úthlutað er á almanaksárinu, skal skila rafrænt til stjórnar Vísindasjóðs á þar til
gerðum eyðublöðum sem eru á heimasíðu félagsins eigi síðar en 15.mars eða fyrsta virka dag þar á eftir.
Rétt til að sækja um styrki eiga fullgildir og skuldlausir félagsmenn FS og skulu þeir hafa verið félagar fagdeildar í
amk. 3. ár. Stjórn sjóðsins er heimilt að taka tillit til aðstæðna á umræddu tímabili sbr. vegna fæðingarorlofs,
veikindaleyfis eða vegna annarra sérstakra aðstæðna. Einnig er heimilt að taka sérstakt tillit til tíma frá útskrift til
að hvetja til rannsóknar og vísindastarfs fyrir sjúkraþjálfara með styttri starfsaldur.
5.2. Umsóknum um styrk í Vísindasjóð FS þarf að fylgja:
- Fræðilegur bakgrunnur sem rökstyður mikilvægi verkefnisins og gildi þess fyrir sjúkraþjálfara á Íslandi.
- Ítarleg vinnuáætlun.
- Rökstudd kostnaðaráætlun.
- Nauðsynleg leyfi fyrir rannsókninni (ef við á).
- Ef um þýðingarverkefni er að ræða þarf auk þess að fylgja:
- Ítarlegar upplýsingar um mælitækið sem á að þýða og gildi þess fyrir sjúkraþjálfara á Íslandi.
- Nákvæm vinnuáætlun. Við þýðingar /bakþýðingar spurningalista er m.a. mælt með eftirfarandi verklagi:
- Beaton, D. E. og félagar: Guidelines for the Process of Cross-Cultural Adaptation of SelfReport Measures, Spine 2000; 25(24):3186-3191).
- COSMIN (Consensus-based Standards for the selection of health Measurement Instruments, https://www.cosmin.nl)
- Staðfesting á félagsaðild og að sé skuldlaus við Félag sjúkraþjálfara (sigl@bhm.is)
6. Styrkveitingar
6.1. Vísindasjóður FS styrkir eftirfarandi, einn eða fleiri þætti allt eftir eðli og umfangi verkefnisins:
- Útlagðan kostnað vegna verkefnisins s.s. póstburðargjöld, aðkeypta tölfræðiúrvinnslu og tölvuvinnu (uppsetningu, myndir o.þ.h)
- Vinnuframlag umsækjanda og/eða annarra sem koma að verkefninu. Kostnað vegna aðkeyptrar þýðingarvinnu. Reynt verður að taka tillit til áætlaðs vinnuframlags en það skal lag fram sem vinna í klst.
- Kaup á nauðsynlegum rannsóknartækjum til verkefnisins.
- Ekki fæst styrkur til kaupa almenns skrifstofubúnaðar s.s.tölvur o.þ.h.
6.2. Umsóknir verða metnar af stjórn Vísindasjóðs. Úthlutunarfé hvers árs verður síðan skipt samkvæmt mati stjórnar. Stjórnin getur ákveðið að úthluta öllu fénu til eins umsækjanda eða skipta fénu milli fleiri umsækjenda.
6.3. Ekki er veittur styrkur til sama verkefnis oftar en einu sinni, nema um sé að ræða grundvallarbreytingar á umfangi þess (stækkun úr meistaraverkefni í doktorsverkefni).
6.4. Ekki er veittur styrkur afturvirkt til verkefnis sem er lokið.
6.5. Stjórn Vísindasjóðs áskilur sér rétt til að hafna umsóknum einni eða fleirum eða fara fram á endurskoðun verkefnis- og/eða kostnaðaráætlunar. Gildar umsóknir sem ekki reynist unnt að styrkja verða endursendar. Þær njóta ekki forgangs við næstu úthlutun heldur
verða metnar á jafnréttisgrundvelli við nýjar umsóknir.
7. Úthlutun
7.1. Til að styðja við sjálfbærni sjóðsins þá getur úthlutun á hverju ári verið allt að 90% af öllum framlögum til sjóðsins. Auk þess sem heimilt er að nýta 50% ónýttra styrkja. Miða þarf framlög úr sjóðnum við það að hann geti staðið undir hlutverki sínu milli úthlutunarára að teknu tilliti til tekna og gjalda. Stjórn Vísindasjóðs getur vikið frá þessu viðmiði að fengnu samþykki frá stjórn Félags sjúkraþjálfara.
7.2. Styrk úr sjóðnum er úthlutað annars vegar til ákveðinna umsækjanda vegna rannsókna/verkefna. Hætti umsækjandi(ur) af einhverjum ástæðum við verkefnið, gengur styrkurinn til Vísindasjóðs á ný en fylgir ekki verkefninu. Hins vegar er styrk úr sjóðnum úthlutað til ákveðins verkefnis. Styrkurinn greiðist inn á rannsóknarreikning verkefnisins og fylgir verkefninu.
7.3. Stjórn Vísindasjóðs gerir grein fyrir vali styrkþega á Degi sjúkraþjálfunar ár hvert.
7.3.1. Helmingur styrkupphæðar greiðist styrkþega við það tækifæri, en meginregla við úthlutun styrkfjárins er að upphæðin sé greidd í tvennu lagi. Þó má greiða styrkinn í einu lagi ef aðstæður krefjast að mati stjórnar.
7.3.2. Seinni hluti styrkupphæðar er afgreiddur að fenginni framvinduskýrslu sem skila skal til stjórnar Vísindasjóðs, ásamt kvittunum, sem skal berast til skrifstofu félagsins (sjukrathjalfun@sjukrathjalfun.is) fyrir 1.desember styrkárið. Styrkþegi skal kynna niðurstöður í ritrýndu tímariti s.s. Sjúkraþjálfaranum, fagtímariti Félags sjúkraþjálfara. Sé ekki sýnt fram á eðlilega framvindu verkefnis á Vísindasjóður endurkröfurétt á úthlutan fé.
7.4. Framkvæmdastjóri SIGL annast greiðslu styrkja úr úthlutunarsjóðnum að fenginni staðfestingu stjórnar Vísindasjóðs.
7.5. Framkvæmdastjóri SIGL sendir styrkþega (einstaklingi) launaseðil vegna styrks og ber styrkþega að telja styrkinn fram til skatts en getur talið fram raunverulegan kostnað sem frádráttarlið á móti.
7.6. Stjórn Vísindasjóðs styðst við eftirfarandi viðmið við ákvörðun styrkupphæða en er heimilt að lækka greiðslur m.t.t. til krafna sjóðsins er varðar sjálfbærni.
- Doktorsverkefni: Tveggja mánaða laun doktorsnema, miðast við launaflokk 030 samkvæmt launatöflu stjórnsýslu - Félags Háskólakennara (gildandi launatafla við úthlutun).
- Meistaraverkefni: Eins mánaða laun meistaranema, miðast við launaflokk 020 samkvæmt launatöflu stjórnsýslu - Félags Háskólakennara (gildandi launatafla við úthlutun).
- Önnur rannsóknarverkefni: Að jafnaði ekki meira en helmingur styrkupphæðar sem veitt er til doktorsverkefna, þó með hliðsjón af kostnaðaráætlun.
- Þýðingarverkefni: allt að 450 þús. eftir gæðum umsóknar, umfangi og kostnaðaráætlun.
- Þróunarverkefni: allt að 450 þús. eftir gæðum umsóknar, umfangi og kostnaðaráætlun.
8. Ágreiningur um úrskurð, vanhæfni stjórnar Vísindasjóðs
8.1. Úrskurði stjórnar Vísindasjóðs er ekki hægt að áfrýja, en hægt er að óska eftir rökstuðningi fyrir höfnun.
8.2. Sé stjórnarmaður vanhæfur vegna hagsmunatengsla, þá kallar sjóðsstjórn til varamann eða menn í stað þeirra sem eru vanhæfir. Ef vafi leikur á um vanhæfi stjórnaraðila skal viðkomandi upplýsa stjórn Félags sjúkraþjálfara sem getur úrskurðað um hæfi nefndarmanna. Stjórn Félags sjúkraþjálfara hefur vald til að skipa fulltrúa tímabundið í stjórn Vísindasjóðs til að tryggja afgreiðslu umsókna ef meirihluti stjórnar Vísindasjóðs telst vanhæfur vegna hagsmunatengsla við umsækjenda.
8.3. Ef stjórnarmaður sækir um styrk þá tekur varamaður sæti hans það tímabil.
9. Gildistaka
9.1. Starfsreglur þessar taka gildi 3.apríl. 2025
9.2. Breytingar á starfsreglum eru háðar samþykki aðalfundar FS.
9.3. Reglur sjóðsins skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en þriðja hvert ár.

