Vinnureglur um auglýsingar og tilkynningar á vef


Um auglýsingar og tilkynningar á heimasíðu, á facebook síðu og í föstudagsfréttum Félags sjúkraþjálfara


Um efni sem óskað er að komið sé á framfæri við félagsmenn


Atvinnuauglýsingar: Birting á vef Félags sjúkraþjálfara, www.sjukrathjalfun.is, kostar 20.000 kr. Innifalið í henni er birting í 3 mán (eða skemur ef óskað er), og auglýsingin er send út með föstudagsfréttum til félagsmanna.


Auglýsingar frá fyrirtækjum: Auglýsing í föstudagsfréttum Félags sjúkraþjálfara kostar 50.000 kr og er send út í viðhengi með föstudagsfréttum til félagsmanna.


Tilkynningar um ráðstefnur, námskeið, kynningar og sambærilega viðburði, sem teljast hafa gildi fyrir sjúkraþjálfara, eru sendar út með föstudagsfréttum, sendendum að kostnaðarlausu og birtar á facebook síðu félagsins skv mati hverju sinni.


Tilkynningar frá fyrirtækjum, stofnunum og öðrum aðilum sem óska eftir því að efni sé komið á framfæri við félagsmenn eru sendar út með föstudagsfréttum, sendendum að kostnaðarlausu, að hámarki 4x á ári. Komi frekari óskir eru þær metnar af formanni FS og skrifstofu hverju sinni.


Tilkynningar/auglýsingar frá fræðslunefnd FS og BHM eru sendar félagsmönnum í föstudagsfréttum og netpósti og birtar á facebook síðu félagsins eftir þörfum.


Óskir um annað eru metnar hverju sinni af skrifstofu og formanni. FS áskilur sér rétt til að hafna auglýsingum/tilkynningum.


Samþykkt á fundi stjórnar FS þann 27. júní 2018