Fastanefndir Félags sjúkraþjálfara
Vinnureglur yfirfarnar á fundi stjórnar 16.ágúst 2022
Síðast endurskoðað á fundi stjórnar 7. mars 2018
Vinnureglur um endurgjald vegna trúnaðarstarfa í þágu félagsins.
Þann 4.12.2013 samþykkti stjórn FS vinnureglur um greiðslur vegna trúnaðarstarfa í þágu félagsins. Stuðst var við gögn frá fyrrum félögum sjúkraþjálfara, handbók SSÞ og vinnureglur FÍSÞ og FSSS, auk þess sem kannað var hvernig félagsmönnum annarra sambærilegra félaga, aðallega innan BHM, er umbunað fyrir störf í þágu félaganna. Rétt þykir að hafa þessar reglur skriflegar og aðgengilegar. Í reglunum er kveðið á um að stjórn FS endurskoði vinnureglur árlega.
Þeirri meginreglu er fylgt, að félagsmenn sem starfa í stjórn og kjaranefnd félagsins fái umbun fyrir sín störf, en störf fyrir aðrar nefndir og önnur trúnaðarstörf séu alla jafna unnin í sjálfboðavinnu.
Reglurnar voru endurskoðaðar á vinnufundi stjórnar FS þann 28 maí 2016 í ljósi þess að í fjárhagsáætlun aðalfundar 2016 var gert ráð fyrir 15% hækkun á launum til stjórnar og kjaranefndar. Engin hækkun hafði þá átt sér stað frá 1. janúar 2013.
Reglurnar voru svo aftur endurskoðaðar á fundi stjórnar 7.mars 2018, og nú síðast á fundi stjórnar 16.ágúst 2022. Ekki höfðu orðið hækkanir á greiðslum á þessu fjögurra ára tímabili milli 2018 – 2022. Á fundi stjórnar 22.ágúst var ákveðið að hækka greiðslur til félagsmanna vegna trúnaðarstarfa um 15 % og uppfæra kostnað vegna viðbótarfunda.
A. Þiggjendur endurgjalds
- Formaður Félags sjúkraþjálfara og kjaranefndar félagsins fær greidd laun í samræmi við starfshlutfall sitt, samkvæmt ráðningarsamningi við stjórn félagsins.
- Aðrir stjórnarmeðlimir og aðilar kjaranefndar fá fastar greiðslur fyrir alla mánuði ársins.
- Stjórn FS getur ákveðið að veita greiðslur vegna sértækra verkefna.
- Til að greiðsla komi til álita, skulu trúnaðarstörf hafa verið unnin að lágmarki 4 mánuði á starfsárinu eða að um einstakt en umfangsmikið verkefni hafi verið að ræða.
- Sé kjörinn fulltrúi til trúnaðarstarfa ekki virkur í því að gegna því hlutverki, getur stjórn ákveðið að fella niður umræddar greiðslur vegna trúnaðarstarfa að hluta eða öllu leiti. Stjórn er einnig heimilt að kalla inn varamann ef ástæða þykir til.
B. Upphæð endurgjalds
- Formaður fær greidd laun skv. samningi við stjórn félagsins. Laun formanns skulu miðast við og vera sambærileg við launakjör annara formanna sambærilegra félaga innan BHM. Stjórn ber ábyrgð á að afla þeirra upplýsinga og komast að niðurstöðu um launakjör. Heimilt er að meta til launa meistara, doktorsgráður og sérfræðiviðurkenningu sem og aðra þætti eftir atvikum.
- Stjórn fær greiddar 35.000 kr. á mánuði, fyrir alla mánuði ársins. Greiðslan fer fram tvisvar sinnum á ári, í mars og september ár hvert.
- Aðilar kjaranefndar fá greiddar 17.500 kr á mánuði, fyrir alla mánuði ársins. Greiðslan fer fram tvisvar sinnum á ári, í mars og september ár hvert.
C. Greiðslur fyrir fundasetu í þágu félagsins
- Meðlimir stjórnar og kjaranefndar FS sem sitja fundi með utanaðkomandi aðilum í þágu félagsins, þ.á.m. samningafundi við viðsemjendur, geta óskað eftir greiðslum fyrir þær fundarsetur.
- Upphæð fyrir hvern fund er kr. 8.600,- fyrir allt að tveggja tíma fundarsetu. Eftir það bætast kr. 3.500.- fyrir hvern fundaðan klukkutíma í viðbót.
- Að auki fá sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar greitt ígildi 3 almennra stofumeðferða á hverja klst. samningafundar við viðsemjendur og fyrir samráðsnefndafundi. (Ferðatími telst ekki til fundartíma).
- Skýring: Samningfundir (og samráðsnefndafundir) við viðsemjendur eru öllu jöfnu haldnir á almennum dagvinnutíma, sem þýðir að sjálfstætt starfandi aðili missir ekki eingöngu tekjur á fundartímanum, heldur er jafnframt með dýra aðstöðu sem hann greiðir fyrir, ónýtta. Því þykir við hæfi að koma á móts við sjálfstætt starfandi aðila með öðrum hætti en launþega, sem öllu jöfnu á rétt á að fara frá vinnu án launaskerðingar. Hægt er að óska eftir greiðslum fyrir fleiri fundi, sem bera upp á almennum dagvinnutíma skv. 3. lið. Stjórn FS úrskurðar um réttmæti kröfunnar, byggt á fyrirliggjandi gögnum.
- Skila skal sundurliðuðu yfirliti yfir fundasetur til framkvæmdastjóra SIGL, þar sem fram koma dagsetning fundar, lengd og tilefni hans. Stjórn FS úrskurðar um réttmæti kröfunnar, byggt á fyrirliggjandi gögnum.
- Endurgreiðslan skal eiga sér stað tvisvar sinnum á ári, í mars og september, og umsóknir/yfirlit skulu berast stjórn fyrir 15. febrúar og 15. ágúst. Umsóknirnar skulu svo teknar fyrir á næsta reglulega stjórnarfundi á eftir og á greiðslan að berast umsækjanda innan viku frá afgreiðslu. Tilkynning um afgreiðslu umsóknar skal send viðkomandi í tölvupósti.
D. Endurgreiðsla útlagðs kostnaðar
- Stjórn FS getur samþykkt endurgreiðslu á ferðakostnaði og öðrum kostnaði fyrir störf í þágu félagsins utan heimabyggðar s.s. fundarsetu, þátttöku á námskeiði, eða fræðslu – sjá 3. gr.
- Framkvæmdastjóri SIGL sinnir endurgreiðslu eftir að stjórn félagsins hefur fengið í hendur og yfirfarið öll nauðsynleg gögn, sem sanna útgjöldin.
- Greiðslur fyrir ferðakostnað á fundi fyrir embættismenn félagsins utan af landi (Styrkur er einungis veittur þeim sem ferðast lengra en 100 km aðra leið, gildir fyrir báðar leiðir). a) Stjórnarmeðlimir/meðlimir í kjaranefnd: i. Fá greiddan ferðakostnað á fundi á vegum stjórnar/kjaranefndar FS tvisvar á ári, að hámarki kr. 65.000 á ári. b) Trúnaðarmenn: 3 i. Geta fengið ferðastyrk til að mæta á trúnaðarmannanámskeið. Styrkur er einungis veittur þeim sem ferðast lengra en 100 km aðra leið. 1. 100-300 km = kr. 10.000 2. > 300 km = kr. 13.000. ii. Hámark eru veittir tveir styrkir á ári. iii. Nýir trúnaðarmenn geta sótt um ferðastyrk fyrir allan ferðakostnað þegar þeir mæta á sitt fyrsta trúnaðarmannanámskeið, þó aldrei meira en kr, 50.000. iv. Undanþágur eru veittar við einstaka tilfelli og er það metið hverju sinni af stjórn FS.
E. Annað:
- Gjaldkeri kynnir stjórninni umsóknir um endurgreiðslu og áætlaðan kostnað við þær.
- Stjórn félagsins endurskoði vinnureglur þessar árlega.
Reykjavík, 16. ágúst 2022 Stjórn Félags sjúkraþjálfara

