Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Nú er ljóst að afnámi tilvísanaskyldu í sjúkraþjálfun hefur því miður verið frestað aftur um ótilgreindan tíma en þó mun hún taka gildi eigi síðar en 1. nóvember.
Breytingin átti upphaflega að taka gildi 1. apríl 2026, var svo frestað til 1. október og kynnt á fræðslufundi á síðastliðinn mánudag að tæki gildi 12. október. Því hefur nú verið frestað á ný vegna þess að endanleg reglugerð Heilbrigðisráðuneytisins hefur ekki verið birt og útfærð og því ekki hægt að loka mati á innleiðingu þrátt fyrir að vonir hafi staðið þar um.
Við höfum gert skýra kröfu um það að sjúkraþjálfurum verði gefinn tími til undirbúnings og að dagsetningin verði ekki sett skyndilega og með stuttum fyrirvara. Félag sjúkraþjálfara hefur þó þrýst á að breytingin taki gildi sem fyrst og unnið að þeim kerfisbreytingum sem hefur þurft að gera.
Við erum í virku samtali við Sjúkratryggingar Íslands varðandi málið og munum upplýsa félagsfólk um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.









