Tímabundin lausn varðandi tilvísanaskyldu

Mikilvægt samkomulag hefur náðst um að fjölga tímabundið þeim meðferðarskiptum í sjúkraþjálfun sem sjúklingar geta fengið án tilvísunar. Breytingin gildir í október, þar til tilvísanaskylda í sjúkraþjálfun verður afnumin 1. nóvember 2026.


Geta sjúklingar því fengið nú allt að níu meðferðarskipti án tilvísunar, í stað sex áður. Með þessu aukna svigrúmi er brugðist við þeirri stöðu sem skapaðist þegar gildistöku afnáms tilvísanaskyldunnar var frestað. Sjúkratryggingar Íslands og Heilbrigðisráðuneytið hafa með samkomulaginu brugðist við óskum Félags sjúkraþjálfara um tímabundna lausn. Þetta er mikilvægt skref til að draga úr neikvæðum áhrifum seinkunarinnar, tryggja betur samfellu í þjónustu og minnka hættu á óþarfa viðbótarálagi á heilsugæslur vegna beiðna um tilvísanir með skömmum fyrirvara.



Tilvísanaskylda í sjúkraþjálfun verður samkvæmt áætlun afnumin 1. nóvember 2026. Tímabundna fyrirkomulagið í október tryggir sjúklingum aukið svigrúm þar til breytingin tekur gildi.

Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. september 2026
Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 8. júlí 2026
Félag sjúkraþjálfara lýsir áhyggjum af áhrifum nýs komugjalds
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. júní 2026
Umsögn FS til ESB um starfsleyfaveitingar
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 10. júní 2026
Sjúkraþjálfun er þjóðhagslega hagkvæm
Show More