Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er fram undan og nú er íslenska efnið fyrir daginn tilbúið.
Dagurinn er mikilvægt tækifæri fyrir sjúkraþjálfara um allan heim til að vekja athygli á faginu, því mikilvæga hlutverki sem sjúkraþjálfun gegnir í heilbrigðisþjónustu og því hvernig þekking og þjónusta sjúkraþjálfara stuðlar að heilsu, virkni og lífsgæðum fólks. Við hjá Félagi sjúkraþjálfara hvetjum því alla sjúkraþjálfara, vinnustaði og starfsstöðvar til að taka þátt í að gera daginn sýnilegan.
Efnið hefur nú verið þýtt og staðfært á íslensku og er tilbúið til notkunar. Við hvetjum ykkur til að nýta það sem víðast til dæmis:
- á samfélagsmiðlum og vefsíðum
- á skjám og upplýsingatöflum á vinnustöðum
- á biðstofum og meðferðarstöðvum
- í innri miðlum vinnustaða
- og í samtölum við skjólstæðinga, samstarfsfólk og aðra um mikilvægi sjúkraþjálfunar
Því fleiri sem taka þátt, því sýnilegri verður bæði dagurinn og það mikilvæga starf sem sjúkraþjálfarar sinna á hverjum degi.
Í ár er dagurinn tileinkaður hjarta- og æðasjúkdómum og heilablóðföllum og hlutverki sjúkraþjálfara í forvörnum, fræðslu og endurhæfingu í kjölfar þeirra. Þetta er fyrsti hluti í fjögurra ára herferð þar sem langvinnir sjúkdómar verða í forgrunni og á næstu árum verður fjallað um krabbamein, sykursýki og öndunarfærasjúkdóma.
Hjálpumst að við að gera alþjóðlegan dag sjúkraþjálfunar sýnilegan um allt land.
Við hlökkum til að sjá daginn lifna við á vinnustöðum og samfélagsmiðlum sjúkraþjálfara um land allt.









