Fækkun sjúkraþjálfara á Reykjalundi vekur áhyggjur
Fækkun sjúkraþjálfara á Reykjalundi vekur áhyggjur
Stjórn Félags sjúkraþjálfara hefur miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin á Reykjalundi. Mikil fækkun sjúkraþjálfara og annars sérhæfðs starfsfólks hefur þegar leitt til aukins álags, óöryggis í starfsumhverfi og brotthvarfs mikilvægrar sérfræðiþekkingar.
Þessi þróun hefur haft í för með sér skerðingu á þjónustu við viðkvæma hópa. Þverfagleg samvinna hefur veikst og möguleikar til að mæta þörfum þeirra sem reiða sig á sérhæfða endurhæfingu hafa minnkað.
Mikil fækkun sjúkraþjálfara og stöðugilda
Samkvæmt upplýsingum Félags sjúkraþjálfara hefur sjúkraþjálfurum á Reykjalundi fækkað verulega á síðustu misserum, einkum vegna þess að starfsfólk hefur sjálft sagt upp störfum. Áætlað er að fjöldi sjúkraþjálfara gæti farið úr um 24 fyrir rúmu ári síðan og niður í 12 – 13 í byrjun árs 2027. Jafngildir þetta um 50% fækkun stöðugilda á þessu tímabili ef ekki tekst að ráða nýtt starfsfólk inn.
Fleira starfsfólk íhugar nú stöðu sína og áhyggjur eru af því að uppsögnum kunni að fjölga á næstu vikum og mánuðum verði ekki brugðist við. Frekari veikindi og fjarverur af öðrum ástæðum geta aukið enn á vandann og veikt mönnun stofnunarinnar enn frekar.
Þessi þróun skerðir möguleika starfsfólks til að veita skjólstæðingum Reykjalundar þá sérhæfðu þjónustu sem þeir þurfa. Starfsfólk lýsir því jafnframt að sífellt erfiðara sé að uppfylla faglegar kröfur og fylgja klínískum leiðbeiningum. Áhrifin eru nú þegar sýnileg, þótt umfang þeirra sé mismunandi eftir sviðum, en almennt er ekki lengur unnt að veita jafn víðtæka meðferð og áður.
Áhyggjurnar takmarkast ekki við sjúkraþjálfun. Fleiri lykilfagstéttir verða fyrir áhrifum og má þar nefna sálfræðinga, næringarfræðinga og iðjuþjálfa. Þjónusta talmeinafræðinga hefur þegar verið lögð niður innan stofnunarinnar. Þessi þróun ógnar þeirri þverfaglegu samvinnu sem sérhæfð endurhæfing byggir á og hefur einkennt Reykjalund á síðastliðnum áratugum.
Áhyggjur starfsfólks legið fyrir
Félag sjúkraþjálfara bendir á að starfsfólk Reykjalundar hafi þegar í mars 2026 lýst yfir áhyggjum af þróuninni í sameiginlegu erindi 49 starfsmanna til heilbrigðisráðherra og Embættis landlæknis. Þar var meðal annars varað við útfærslu niðurskurðar, því að erfitt yrði að halda í og ráða sérhæft fagfólk og að gæði þjónustunnar gætu beðið hnekki ef ekki yrði gripið til aðgerða.
Reykjalundur gegnir lykilhlutverki í endurhæfingu á Íslandi. Á hverju ári leita þangað yfir eitt þúsund einstaklingar með flókinn og fjölþættan vanda þar sem markmiðið er að bæta færni, þátttöku og vinnugetu. Árangur þeirrar þjónustu byggir á sérþekkingu og reynslu fjölmargra fagstétta sem unnið hafa saman að uppbyggingu starfseminnar í áratugi.
Framkvæmd breytinga
FS hefur fengið staðfest að húsnæðis- og aðstöðuvandi hafi haft neikvæð áhrif á starfsumhverfið og mikilvægt er að brugðist verði við honum, og fögnum við því söfnunarátaki sem nýlega fór fram.
Húsnæðisvandinn er þó ekki meginskýring þeirrar stöðu sem nú er upp komin að mati fjölda starfsfólks. Vegur þar þungt skortur á samtali og aðferðafræði er varðar niðurskurð. Hefur þetta grafið undan trausti til yfirstjórnar, aukið óvissu og stuðlað að brotthvarfi.
Tapist sú sérþekking sem byggð hefur verið upp á Reykjalundi verður erfitt og tímafrekt að byggja hana upp á ný.
Kallað eftir lausnum og aðgerðum
FS skorar á stjórn og framkvæmdastjórn Reykjalundar sem og heilbrigðisyfirvöld að grípa til nauðsynlegra aðgerða til þess að koma í veg fyrir frekari fækkun sérhæfðs starfsfólks stofnunarinnar. Tryggja þarf öruggar og heilnæmar starfsaðstæður sem og að endurbyggja traust, stöðva frekara brottfall sérfræðinga og leita allra leiða til að viðhalda gæðum þeirrar þjónustu sem Reykjalundur stendur fyrir.
Félag sjúkraþjálfara ítrekar að tryggja verður öfluga stjórnun sem og fullnægjandi og sjálfbæra fjármögnun endurhæfingarþjónustu. Tryggja verður að fjármögnun og mönnun standi undir þeirri þjónustu sem íbúar landsins þurfa á að halda.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnlaugur Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara
S:820-4521









