Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026

Golfmót sjúkraþjálfara 2026 fór fram þann 20. ágúst hjá Golfklúbbi Brautarholt, í blíðskaparveðri eins og alltaf. Metþátttaka var á mótinu, en rúmlega 50 manns voru skráðir til leiks. Það var sérlega skemmtilegt og vel þegið nú þegar mótsstjórar síðustu 8 móta voru að stýra sínu síðasta móti. Kunnum við þeim Villa og Rúnari miklar þakkir fyrir þeirra störf í þágu félagsins og golfandi sjúkraþjálfara. Þeim félögum tókst þó ekki frekar en flestum öðrum að spila á sinni forgjöf á þessum krefjandi velli en það var ekki annað að sjá en öll hafi skemmt sér vel!
Úrslit mótsins og vinningar voru eftirfarandi:
Punktakeppni
Karlar
1. sæti: Ásþór Sigurðsson á 36 punktum
2. sæti: Sigurður Örn Gunnarsson á 35 punktum
3. sæti: Agnar Þorláksson á 34 punktum
Konur
1. Sandra Sigurðardóttir á 34 punktum
2. Kristbjörg Helgadóttir á 33 punktum
3. Ingveldur B Jóhannesdóttir á 32 punktum
Höggleikur
Karlar
Arnar Freyr Hermannsson á 79 höggum
Konur
Kristbjörg Helgadóttir á 88 höggum
Nándarverðlaun á par 3 holum fóru síðan vestur á Granda, austur á Selfoss og suður í Hafnarfjörðinn, góð skipting þar og lengsta upphafsöggið fór alla leið til Húsavíkur!
Velunnarar mótsins voru eins og oft áður Félag sjúkraþjálfara og svo fjölmargir aðrir sem gáfu vinninga.
Það voru Örninn, STOÐ, Fastus, Sjúkraþjálfun Kópavogs, Sjúkraþjálfun Íslands, Sjúkraþjálfarinn, Heil heilsumiðstöð, Golfstöðin, Golfskálinn og Eirberg. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir að gera okkur kleift að hafa mótið sem glæsilegast.













