Lækkun sérstakra komugjalda hins opinbera vegna hópmeðferða hjá sjúkraþjálfurum

Félag sjúkraþjálfara lýsir yfir ánægju með ákvörðun heilbrigðisráðuneytisins um að lækka sérstök komugjöld hins opinbera vegna hópmeðferða hjá sjúkraþjálfurum frá og með 27. nóvember. Ráðuneytið hefur tekið mið af ábendingum og gagnrýni Félags sjúkraþjálfara og brugðist við með jákvæðum breytingum sem bæta aðgengi viðkvæmra hópa að nauðsynlegri endurhæfingu.


Þegar komugjöldin tóku gildi 1. september síðastliðinn gagnrýndi félagið útfærslu þeirra og benti á að aukinn kostnaður gæti skert aðgengi að sjúkraþjálfun. Áhyggjurnar sneru ekki síst að eldra fólki, öryrkjum og einstaklingum með langvinna sjúkdóma eða færniskerðingar sem þurfa reglulega á meðferð að halda.


Lækkun komugjalda í hópmeðferð er því jákvætt skref og til marks um mikilvægi þess að hlustað sé á ábendingar um áhrif gjaldtöku á þá sem reiða sig á þjónustuna.


Ný komugjöld í hópmeðferð

Frá og með 27. nóvember verður sérstakt komugjald í hópmeðferð helmingur af almennu komugjaldi. Gjöldin verða eftirfarandi:


  • Almennir: 750 kr.
  • Ellilífeyrisþegar: 500 kr.
  • Öryrkjulífeyrisþegar: 250 kr.
  • Börn: Ekkert gjald.


Almenn komugjöld vegna einstaklingsmeðferðar haldast óbreytt. Sérstaka komugjaldið er áfram utan afsláttarstofns og lækkar því ekki frekar þótt komum eða meðferðartímum fjölgi.


Áfram þarf að meta áhrif komugjalda

Þótt félagið lýsi yfir ánægju með þessa breytingu er mikilvægt að áhrif komugjalda á aðgengi að sjúkraþjálfun verði áfram til skoðunar. Félagið treystir því að ráðuneytið haldi áfram að meta almenn áhrif gjaldanna og endurskoði útfærslu þeirra ef niðurstöður sýna neikvæð áhrif á aðgengi eða fjárhag og stöðu einstaklinga.


Markmiðið þarf að vera skýrt: að fólk geti sótt nauðsynlega endurhæfingu óháð efnahag. Félag sjúkraþjálfara mun áfram standa vörð um aðgengi að þjónustunni og koma ábendingum á framfæri við stjórnvöld.


Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 25. nóvember 2026
Umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. október 2026
Mikilvægt skref fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 13. október 2026
Fækkun sjúkraþjálfara á Reykjalundi vekur áhyggjur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 1. október 2026
Tímabundin lausn varðandi tilvísanaskyldu
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. september 2026
Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Show More