Umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar

Félag sjúkraþjálfara hefur nú skilað inn umsögn um drög að breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 um grunnmat, sjúkradagpeninga og fleira. Félagið leggur í umsögninni ríka áherslu á að einstaklingum verði tryggt raunhæft svigrúm til meðferðar og endurhæfingar og að ábyrgð og verkaskipting aðila verði ótvíræð. Aukin umsýsla eða bið eftir þjónustu megi hvorki skerða réttindi einstaklinga né veikja stöðu þeirra.
Félagið gerir meðal annars alvarlegar athugasemdir við aðgreiningu frumvarpsins á „endurhæfingu“ og „viðurkenndri meðferð“. Með því að einskorða endurhæfingarhugtakið í reynd við starfstengda endurhæfingu sé önnur heilbrigðistengd endurhæfing felld undir hugtakið viðurkennd meðferð. Bendir félagið á að þessi hugtakanotkun samræmist illa almennum faglegum og alþjóðlegum skilningu á endurhæfingu og sé þessi aðgreining til þess fallin að skapa óþarfa og óeðlileg skil á milli heilbrigðistengdrar endurhæfingar og starfsendurhæfingar.
Samkvæmt drögunum er réttur til greiðslu endurhæfingarlífeyris verulega styttur og leggur Félag sjúkraþjálfara áherslu á að greina þurfi hverjir eru á endurhæfingarlífeyri, vegna hvaða heilsubrests og hvort samsetning hópsins hafi breyst. Aðgengi að grunnheilbrigðis- og sérfræðisþjónustu geti haft veruleg áhrif á þessa tölfræði. Þá telur Félagið sérstaklega mikilvægt að breytingin verði metin í ljósi þeirrar áherslu sem undanfarin ár hefur verið lögð á snemmtæka íhlutun, öflugri endurhæfingu og stuðning við endurkomu til vinnu.
Félag sjúkraþjálfara telur nauðsynlegt að fyrir afgreiðslu frumvarpsins liggi skýr innleiðingaráætlun með mati á nauðsynlegum kerfisbreytingum og tíma til innleiðingar. Jafnframt verði að afmarka skýrt hvaða atriði verða ákveðin í lögum og hvaða framkvæmdaratriði verða útfærð í reglugerð.
Hægt er að lesa umsögnina í heild sinni með því að smella HÉR.









