Umsögn FS til ESB um starfsleyfaveitingar

Félag sjúkraþjálfara hefur sent inn umsögn í samráðsgátt ESB um fyrirliggjandi frumvarp um sameiginlegan ramma um veitingu starfsleyfa til sjúkraþjáfara í Evrópu.
Félag sjúkraþjálfara fagnar því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vilji styðja við hreyfanleika fagfólks og skilvirka málsmeðverð við viðurkenningu starfsréttinda. Hins vegar ætti sameiginlegur rammi um nauðsynlega menntun til starfsleyfis aðeins að koma til framkvæmda ef hann byggir á háum og gagnsæjum stöðlum, skýrt skilgreindum hæfniviðmiðum og varúðarráðstöfunum sem tryggja með fullnægjandi hætti öryggi sjúklinga og gæði þjónustu.
Á Íslandi er sjúkraþjálfari lögverndað starfsheiti. Grunnmenntun til starfsréttinda samsvarar 7. þrepi evrópska hæfnirammans og 300 ECTS-einingum. Sameiginlegur rammi sem myndi fela í sér sjálfkrafa veitingu starfsleyfis á grundvelli 6. þreps evrópska hæfnirammans eða 180-ECTS-eininga myndi því setja sameiginlegt lágmarksviðmið 120 ECTS-einingum neðan en þær kröfur sem Ísland gerir nú þegar til sjúkraþjálfara.
Sameiginlegur rammi ætti ekki að draga úr þeim kröfum sem lögbær stjórnvöld og aðildarríki hafa nú yfir að ráða. Það er mat Félags sjúkraþjálfara að aðeins sé hægt að styðja við sameiginlegan ramma fyrir sjúkraþjálfara ef hann byggir á háum og samræmdum gæðastöðlum. Á þessu stigi telur Félag sjúkraþjálfara að sjálfkrafa viðurkenning á grundvelli 6. þreps evrópska hæfnirammans veiti ekki nægilega tryggingu fyrir sambærilegri hæfni milli allra þeirra landa sem um ræðir.









