Hreyfidagatal fyrir eldra fólk

Sjúkraþjálfararnir Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk Guðmundsdóttir gáfu á dögunum út hreyfidagatal fyrir eldra fólk. Um er að ræða gormabók sem inniheldur eina æfingu á dag með útskýringum og leiðbeiningum og er dagatalið gert til þess að hægt sé að nota það ár eftir ár. Einnig stendur til að gefa dagatalið einnig út rafrænt fyrir þau sem það kjósa.


Hugmyndin að dagatalinu spratt frá fyrra verkefni Hildar sem kallast „Væntumþykja í verki“ þar sem aðstandendur voru hvattir til að virkja eldra fólk til heilsueflingar. Aðalmarkmiðið með hreyfidagatalinu er skýrt: að fá fleira eldra fólk til að hreyfa sig reglulega. Verkefnið nýtur stuðnings Félags sjúkraþjálfara, Landsambands eldri borgara og Farsællar öldrunar.


Fjallað var um hreyfidagatalið í Morgunblaðinu og má nálgast fréttina hér.

Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. október 2026
Mikilvægt skref fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 13. október 2026
Fækkun sjúkraþjálfara á Reykjalundi vekur áhyggjur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 1. október 2026
Tímabundin lausn varðandi tilvísanaskyldu
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. september 2026
Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Show More