Vegið að samningsrétti sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara

Félag sjúkraþjálfara gagnrýnir harðlega fraumvarp um breytingar á lögum um sjúkratryggingar í umsögn sinni til velferðarnefndar Alþingis.

Vegið er að samningsrétti og stöðu sjúkraþjálfara og annars sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks. Frumvarpið markar kerfisbreytingar í samskiptum ríkisins og sjálfsstætt starfandi. Er þetta áframhald vinnu sem fjallað var um í fjölmiðlum í lok árs 2025, þar sem formaður FS kom fram fyrir hönd félaga sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks sem gagnrýndu upprunaleg frumvarpsdrög.


Í lagafrumvarpinu er m.a. lögð til heimild til sjúkratryggingarstofnunar til þess að setja á tímabundna einhliða gjaldskrá þegar samningar eru ekki í gildi, og leggja samhliða á bann við viðbótargjöldum vegna samningsleysis. Með slíku fyrirkomulagi er verið að setja á einhliða stjórnvaldsákvörðun í stað tvíhliða samningaviðræðna líkt og hefur tíðkast. Einnig eru lagðar til skyldur um rekstrarform, og að slíkt skuli að jafnaði vera ehf. eða hf. Að mati Félags sjúkraþjálfara felur þetta í sér verulega og óþarfa íhlutun í atvinnufrelsi sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks. Frumvarpið sýnir ekki fram á að útilokun annarra lögmætra rekstrarforma sé nauðsynleg eða í samræmi við markmið um gagnsæi eða eftirlit með kostnaði. Þvert á móti eru stjórnvöldum falin víðtæk, matskennd og lítt afmörkuð völd til að veita undanþágur frá reglunni. Slíkt fyrirkomulag er bersýnilega andstætt jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, skapar ófyrirsjáanleika fyrir atvinnurekendur og eykur verulega hættu á mismunun í framkvæmd.


Frumvarpið veitir Sjúkratryggingum einnig afar víðtækar og illa afmarkaðar heimildir til upplýsingaöflunar, bæði frá samningsaðilum og í gegnum embætti landlæknis. Jafnframt er kveðið á um skyldu til að afhenda ítarlegar upplýsingar um rekstur, starfsmannahald og fjárhagslega uppbyggingu starfseminnar. Heimildir þessar ganga langt umfram það sem nauðsynlegt er til að tryggja framkvæmd samninga eða eftirlit með greiðslum og fela í sér verulega íhlutun í sjálfstæða starfsemi þjónustuveitenda, sem er ekki í samræmi við almennar kröfur eða venjur hins opinbera.


Einnig er lagt til að heimilt verði að taka gjöld utan afsláttarstofns fyrir þjónustu sjúkraþjálfara. Það þýðir í raun að tiltekinn hluti gjalds í sjúkraþjálfun myndi ekki telja til afsláttarstofns, sem myndi leiða til aukins kostnaðar fyrir almenning við að sækja þjónustu. Telur FS að ef slík heimild ætti að ná til sjúkraþjálfunar ætti slíkt einnig að gilda um aðra þjónustu sem fellur undir sameiginlegt greiðsluþátttökukerfi.

Frumvarpið er brotakennt og skortir heildstæða sýn á framtíðarskipan samningsfyrirkomulags og hlutverks sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks innan opinbera heilbrigðiskerfisins.


Félag sjúkraþjálfara hefur skorað á Alþingi að endurskoða grundvallaratriði frumvarpsins í samráði við þjónustuveitendur og fulltrúa þeirra.

Samhliða þessari vinnu hefur félagið einnig verið að vinna að ítarlegum greiningum á notkun þjónustunar. Tengist sú vinna einkum áherslum ráðuneytisins um heildarmagn veittrar eininga skuli ekki fara umfram umsamið magn sem það hefur gert. Félagið er í virku samtali við bæði Sjúkratryggingar hvað málið varðar sem og við ráðuneytið og munum við upplýsa frekar um gang mála.


Fyrirhugað er að hafa upplýsingafund fyrir félagsfólk sem auglýstur verður von bráðar.

Recent Posts

Gunnlaugur Már Briem talar við hópinn.
Eftir Félag sjúkraþjálfara 26. mars 2026
Fundurinn var haldinn á Húsavík 25. mars 2026.
Sjúkraþjálfararnir Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk Guðmundsdóttir með hreyfidagatalið.
Eftir Félag sjúkraþjálfara 25. mars 2026
Sjúkraþjálfararnir Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk Guðmundsdóttir gáfu á dögunum út hreyfidagatal fyrir eldra fólk til að hvetja til reglulegrar hreyfingar.
Eftir Félag sjúkraþjálfara 16. mars 2026
Framboðsfresti til formannskjörs 2026 er lokið. Sitjandi formaður er sjálfkjörinn til næstu tveggja ára.
Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara
Eftir Félag sjúkraþjálfara 12. mars 2026
Umræða um endurhæfingu hefur aukist, ekki aðeins í opinberri stefnumótun heldur líka í daglegri umræðu fólks. Samningur Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands hefur þegar sýnt árangur, þar sem viðkvæmir hópar hafa fengið betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, og lífsgæði fjölda einstaklinga hafa batnað.
Eftir Félag sjúkraþjálfara 25. febrúar 2026
Framboð til formanns félags Sjúkraþjálfara
Eftir Félag sjúkraþjálfara 12. febrúar 2026
Félagið boðar til upplýsingafundar fyrir félaga til að ræða þau mál sem eru í deiglunni.
Nýarskaffi heldri sjúkraþjálfara
15. janúar 2026
Félag sjúkraþjálfara bauð heldri félögum í nýárskaffi í upphafi árs.
21. október 2025
Yfirlýsing Félags sjúkraþjálfara vegna tilkynningar heilbrigðisráðuneytisins um afnám tilvísanaskyldu í sjúkraþjálfun
Show More