Upplýsingafundur FS - 17. febrúar kl.17:30

Félag sjúkraþjálfara boðar til upplýsingafundar þann 17. febrúar.

Við teljum mikilvægt að fara yfir mál líðandi stundar með félagsfólki og skapa vettvang þar sem því gefst tækifæri til að fá ítarlegri upplýsingar um stöðuna, spyrja spurninga og taka þátt í umræðu sem snertir okkur öll.


Efni fundarins mun snúa að fyrirliggjandi frumvarpi um breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem og um umfang veittrar þjónustu skv. samningi FS og SÍ í samræmi við heildar umsamið einingamagn.


Dagskrá fundarins verður:

  • Framsaga frá formanni
  • Yfirferð á frumvarpi um breytingar á lögum um sjúkratryggingar
  • Staða mála er varðar heildareiningamagn samnings
  • Umræður


Upplýsingafundur fyrir félagsfólk FS

Hvenær: 17. febrúar kl.17:30 - 19:00

Hvar: Borgartúni 27, 3. hæð

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.


Ítarlegri upplýsingar hafa verið sendar félagsfólki í tölvupósti.

Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 8. júlí 2026
Félag sjúkraþjálfara lýsir áhyggjum af áhrifum nýs komugjalds
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. júní 2026
Umsögn FS til ESB um starfsleyfaveitingar
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 10. júní 2026
Sjúkraþjálfun er þjóðhagslega hagkvæm
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 28. maí 2026
Á hverjum vinnudegi má ætla að yfir 3.000 manns séu frá vinnu vegna stoðkerfiseinkenna hér á landi, séu erlendar rannsóknir heimfærðar á Ísland.
Show More