Aðalfundur Evrópudeildar heimssambands sjúkraþjálfara

Í síðustu viku var aðalfundur Evrópudeildar heimssambands sjúkraþjálfara haldinn í Pristina í Kosovo. Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkrþjálfara sótti fundinn fyrir hönd Íslands.

Heimamenn tóku vel á móti fulltrúum 35 evrópskra sjúkraþjálfarafélaga sem voru mættir til þess að ræða stöðu fagsins, áskoranir og tækifæri.


Svona fundir eru gríðarlega dýrmætir og að þessu sinni voru mikilvæg atriði á dagskrá t.a.m. um hagsmunagæslu sjúkraþjálfara, aðgengismál, fjármögnun þjónustu, námskröfur, starfsleyfaveitingar og lagagrundvöll innan evrópskrar stjórnsýslu auk þess að næra mikilvæg tengsl kollega þvert á landamæri.


Það er bæði fróðlegt og mikilvægt að fá tækifæri til að bera saman reynslu og lausnir milli landa, byggja upp tengslanet og tryggja að íslenskir sjúkraþjálfarar taki virkan þátt í þeirri þróun sem á sér stað í faginu, sérstaklega innan Evrópu.


Á myndinn hér að neðan má sjá Gunnlaug Briem ásamt Tim Németh, nýkjörnum formanni Evrópudeildar heimssambands sjúkraþjálfara.

Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 1. október 2026
Tímabundin lausn varðandi tilvísanaskyldu
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. september 2026
Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 8. júlí 2026
Félag sjúkraþjálfara lýsir áhyggjum af áhrifum nýs komugjalds
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. júní 2026
Umsögn FS til ESB um starfsleyfaveitingar
Show More