Fundur Norrænu fag- og stéttarfélaganna í Kaupmannahöfn
Á dögunum fóru fulltrúar frá Félagi sjúkraþjálfara á árlegan fund Norrænu fag- og stéttarfélaganna í Kaupmannahöfn. Þar stilltu félögin saman strengi sína, deildu verkefnum og árangri, ræddu ýmis heimsmál er varða sjúkraþjálfara og skoðuðu hvernig félögin geta stutt við hvert annað og lært hvert af öðru.
Fundurinn var mjög gagnlegur og alltaf áhugavert að hitta frændur okkar og frænkur á Norðurlöndunum. Það er greinilegt að félögin standa flest frammi fyrir svipuðum áskorunum hvað varðar lagaumhverfi og samninga og við erum þakklát fyrir náið og gott samstarf við þessa nágranna okkar. Alþjóðlegt samstarf er okkur gríðarlega mikilvægt til þess að styðja við áframhaldandi öfluga starfsemi fyrir hag sjúkraþjálfara og framþróun stéttarinnar á heimsvísu.
Recent Posts








