Framboð til formanns félags Sjúkraþjálfara

Aðalfundur Félags sjúkraþjálfara verður haldinn þann 14. apríl 2026 kl. 17:00.

Á fundinum verður kosið til embættis formanns til næstu tveggja ára. Með þessu er auglýst eftir framboðum til embættisins.

 

Framboðsfrestur rennur út 10. mars 2026. Framboðum skal skilað til ritara félagsins fyrir þann tíma á thorabs@landspitali.is

 

Sitjandi formaður, Gunnlaugur Briem, hefur upplýst stjórn um að hann sækist eftir endurkjöri og gefi þar með kost á sér til áframhaldandi formannssetu til næstu tveggja ára.

 

Berist fleiri en eitt framboð munu frambjóðendur fá tvær vikur til að kynna sig. Skrifstofa félagsins mun aðstoða við kynningu á miðlum félagsins og tryggja jafnræði milli frambjóðenda. Að loknu kynningartímabili verður rafræn kosning meðal alls félagsfólks (að undanskildri nemaaðild).

 

Skv. lögum Félags sjúkraþjálfara er kjörgengi ávallt skilyrt því að viðkomandi sé skuldlaus við félagið miðað við félagsaðild sína.

 

Frekari fyrirspurnir skulu berast til Félags sjúkraþjálfara á sjukrathjalfun@sjukrathjalfun.is eða til ritara á thorabs@landspitali.is


Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 1. október 2026
Tímabundin lausn varðandi tilvísanaskyldu
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. september 2026
Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 8. júlí 2026
Félag sjúkraþjálfara lýsir áhyggjum af áhrifum nýs komugjalds
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. júní 2026
Umsögn FS til ESB um starfsleyfaveitingar
Show More