Sjúkraþjálfarar létta álagi af bráðamóttöku

Sjúkraþjálfarar á bráðamóttöku og tengdum deildum Landspítala, í samstarfi við sjúkraþjálfara á stofum, hafa hrundið af stað nýju samvinnuverkefni sem miðar að því að fækka ónauðsynlegum innlögnum og auðvelda útskriftir tiltekinna sjúklingahópa. Áætlað er að verkefnið geti náð til amk. 30–40 einstaklinga í hverjum mánuði og hafi þannig veruleg jákvæð áhrif á sjúklinga og aðstandendur þeirra, auk þess að létta álagi af Landspítala. Nú þegar hafa fjölmargar sjúkraþjálfunarstofur lýst yfir þátttöku og er undirbúningur kominn vel af stað.
Markmið verkefnisins er að bæta enn frekar þjónustu og tryggja forgang fyrir skilgreinda hópa einstaklinga sem leita á bráðamóttöku eða dvelja á tengdum deildum, með því að veita þeim skjótan og markvissan aðgang að sjúkraþjálfun utan stofnunarinnar. Með snemmtækri íhlutun er leitast við að draga úr þörf fyrir innlögn og styðja við örugga útskrift þeirra sem ekki þurfa áframhaldandi sjúkrahúsdvöl.
Verkefnið er svar við þeirri stöðu sem skapast hefur á bráðamóttöku undanfarna mánuði og skorts á hjúkrunarrýmum, þar sem þörf fyrir nýjar lausnir hefur verið augljós. Með auknu samstarfi verður hægt að greina fyrr þá einstaklinga sem eru í aukinni hættu á endurkomu eða innlögn og tryggja þeim hraðari aðgang að viðeigandi þjónustu.
Í verkefninu felst meðal annars að skilgreina forgangshópa, samræma verkferla og bæta upplýsingaflæði milli Landspítala og sjúkraþjálfara á stofum. Sérstök áhersla verður einnig lögð á að einstaklingar með veruleg verkjavandamál, færniþjálfunarþörf eða vægar eftirstöðvar heilablóðfalls fái snemmbæra þjónustu.
Með þessu framtaki leggja sjúkraþjálfarar sitt af mörkum til að efla enn frekar forgansröðun þjónustu, styrkja grunnstoðir heilbrigðiskerfisins og stuðla að öflugri nýtingu úrræða, með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar:
Gunnlaugur Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara
Netfang: gunnlaugur@sjukrathjalfun.is
Recent Posts








