Sjúkraþjálfun er þjóðhagslega hagkvæm

Aukin greiðsluþátttaka ríkisins og þar með bætt aðgengi að þjónustu sjúkraþjálfara, dró úr nýgengi á örorku vegna stoðkerfissjúkdóma.


Félag sjúkraþjálfara gaf árið 2023 út skýrslu sem greinir þróun á nýgengi örorku og endurhæfingarlífeyri, sérstaklega er horft til þeirra breytinga sem orðið hafa frá því að nýtt greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga tók gildi árið 2017.


Niðurstöður skýrslunar sýna með skýrum hætti að bætt aðgengi að sjúkraþjálfun með aukinni greiðsluþátttöku ríkisins dró úr nýgengi á örorku vegna stoðkerfissjúkdóma, mestar voru breytingarnar hjá einstaklingum sem voru eldri en 50 ára.


Nýtt greiðsluþátttökukerfi bætti aðgengi einstaklinga að þjónustunni þar sem árleg meðalútgjöld einstaklinga lækkuðu verulega. Má ætla að þessi breyting hafi haft mest áhrif á aðgengi fyrir þá sem veikast standa og þurftu að neita sér um þjónustuna áður fyrr.


Þessar niðurstöður benda sterklega til þess að gott aðgengi að þjónustu sjúkraþjálfara sé hagkvæm ráðstöfun opinberra fjármuna. Eru þetta mikilvæg gögn inn í áframhaldandi samtal um áherslur í þjónustu heilbrigðiskerfisins þar sem sérfræðiþekking ólíkra fagstétta sé nýtt til bæta árangur.


Skýrsluna má nálgast hér:

Bætt aðgengi - betri horfur


Recent Posts

Eftir Félag sjúkraþjálfara • 13. október 2026
Fækkun sjúkraþjálfara á Reykjalundi vekur áhyggjur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 1. október 2026
Tímabundin lausn varðandi tilvísanaskyldu
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 30. september 2026
Afnámi tilvísanaskyldu frestað aftur
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara • 8. júlí 2026
Félag sjúkraþjálfara lýsir áhyggjum af áhrifum nýs komugjalds
Show More