DAGUR SJÚKRAÞJÁLFUNAR 2025 - SNEMMSKRÁNINGAR GJALD TIL MIÐNÆTTIS 1. MAÍ

Við hvetjum félagsfólk til að skrá sig tímanlega og hlökkum til að að sjá ykkur öll þann 9. maí næstkomandi.

Snemmskráningu lýkur á miðnætti 1.maí (fimmtudagur) og mun þá verð hækka, en áfram verður hægt að skrá sig. 

Félag sjúkraþjálfara býður þig velkomin á Dag sjúkraþjálfunar 2025. Dagurinn verður haldinn þann 9. maí í Smárabíói líkt og síðustu ár.

Dagur sjúkraþjálfunar er stærsta fagráðstefna sjúkraþjálfunar á Íslandi. Þar gefst félagsfólki tækifæri til að afla og miðla þekkingu um þau mál og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir, og á sama tíma að efla og mynda fagleg og félagsleg tengsl.

Dagurinn hefur verið gríðarlega vel sóttur síðastliðin ár sem ber merki um mikinn faglegan metnað stéttarinnar, og erum við stolt af þeirri frábæru dagskrá sem boðið verður upp á nú 2025

Við hvetjum félagsfólk til að skrá sig tímanlega og hlökkum til að að sjá ykkur öll þann 9. maí næstkomandi.

Snemmskráningu lýkur á miðnætti 1.maí (fimmtudagur) og mun þá verð hækka, en áfram verður hægt að skrá sig.

Skráning á daginn í meðfylgjandi hlekk: Dagur sjúkraþálfunar 2025 - Þátttakandi

Þeir sem greiða í Starfsþróunarsetur Háskólamanna geta sótt um styrk fyrir öllu námskeiðsgjaldinu hjá Starfsþróunarsetri Háskólamanna : Starfsþróunarsetur - BHM

DAGSKRÁ OG FREKARI UPPLÝSINGAR Á : Dagur sjúkraþjálfunar – Fagráðstefna sjúkraþjálfunar á Íslandi


Atvinnuauglýsingar

Viltu auglýsa starf á síðunni?



Viðburðir

Fylgstu með helstu viðburðum okkar

Nýjustu fréttir

Eftir Félag sjúkraþjálfara 16. mars 2026
Framboðsfresti til formannskjörs 2026 er lokið. Sitjandi formaður er sjálfkjörinn til næstu tveggja ára.
Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara
Eftir Félag sjúkraþjálfara 12. mars 2026
Umræða um endurhæfingu hefur aukist, ekki aðeins í opinberri stefnumótun heldur líka í daglegri umræðu fólks. Samningur Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands hefur þegar sýnt árangur, þar sem viðkvæmir hópar hafa fengið betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, og lífsgæði fjölda einstaklinga hafa batnað.
Eftir Félag sjúkraþjálfara 25. febrúar 2026
Framboð til formanns félags Sjúkraþjálfara
Eftir Félag sjúkraþjálfara 12. febrúar 2026
Félagið boðar til upplýsingafundar fyrir félaga til að ræða þau mál sem eru í deiglunni.
Rými fyrir sjúkraþjálfun
Eftir Félag sjúkraþjálfara 9. febrúar 2026
Félag sjúkraþjálfara mótmælir harðlega breytingum á lögum um sjúkratryggingar.
Nýarskaffi heldri sjúkraþjálfara
15. janúar 2026
Félag sjúkraþjálfara bauð heldri félögum í nýárskaffi í upphafi árs.
21. október 2025
Yfirlýsing Félags sjúkraþjálfara vegna tilkynningar heilbrigðisráðuneytisins um afnám tilvísanaskyldu í sjúkraþjálfun
17. október 2025
Aðalfundarboð 2025
Félag sjúkraþjálfara mótmælir fyrirhuguðum breytingum á lögum um sjúkratryggingar
6. október 2025
Félag sjúkraþjálfara lýsir yfir áhyggjum af þeim frumvarpsdrögum sem nú liggja fyrir um breytingar á lögum um sjúkratryggingar, eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum.
6. janúar 2025
Félag sjúkraþjálfara og samninganefnd SFV hafa undirritað nýjan kjarasamning til fjögurra ára