Félag sjúkraþjálfara mótmælir fyrirhuguðum breytingum á lögum um sjúkratryggingar

Félag sjúkraþjálfara lýsir yfir áhyggjum af þeim frumvarpsdrögum sem nú liggja fyrir um breytingar á lögum um sjúkratryggingar, eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum. 


Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir því að Sjúkratryggingar fái heimild til að stýra verði þjónustunar í samningsleysi og mæla fyrir um magn viðkomandi þjónustu. Heimilt verði að taka þætti þjónustunar út fyrir afsláttarstofn einstaklinga, sem myndi leiða til aukins kostnaðar fyrir almenning og samhliða hafa áhrif á aðengi. Boðaðar eru auknar kvaðir og kostnaður á þjónustuveitendur, auk þess að settar væru kröfur um rekstrarform þjónustuveitenda sem ekki eru í gildandi samningum eða hafa verið til umræðu. Einnig eru óljósir þættir er varðar öflun og veitingu upplýsinga.


Mikilvægt er að hafa í huga að eftir mikinn þrýsting frá Félagi sjúkraþjálfara um að gengið væri til samninga var loks bundinn endir á 5 ára samningsleysi í október 2024 eða fyrir sléttu ári síðan. Með þessum samningi náðist að koma á faglegri umgjörð um þjónustuveitingu, bættu aðgengi og fyrirsjáanleika í rekstri. Teljum við því skjóta skökku við að boðaðar séu lagabreytingar sem breyta vissum forsendum samninga svo stuttu síðar.


Núverandi lagafrumvarp þarf að taka breytingum til að að ekki verði aukin hætta á að rof komi á nauðsynlega þjónustu ýmissa heilbrigðisstétta síðar. Tryggja þarf að traust sé á milli samningsaðila , og að ekki skapist aukinn kostnaður fyrir almenning við að sækja sér þjónustu.


Í núverandi drögum að lagabreytingum eru þó einnig jákvæðar tillögur að mati félagsins einkum er við kemur styttingu á biðtíma þess að vera sjúkratryggður hér á landi og áherslum um hagrænt mat þeirrar þjónustu sem veitt er. Félag sjúkraþjálfara hefur um langt skeið þrýst á faglega gagnaöflun til að styðja við og styrkja þjónustu til almennings.



Við komandi vinnu þarf að tryggja öflugt samráð milli aðila.


Atvinnuauglýsingar

Viltu auglýsa starf á síðunni?



Viðburðir

Fylgstu með helstu viðburðum okkar

Nýjustu fréttir

Eftir Félag sjúkraþjálfara 14. september 2026
Glæsilegt Golfmót sjúkraþjálfara 20. ágúst 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara 9. september 2026
Hreyfing skiptir sköpum - fyrir og eftir heilablóðfall
Eftir Félag sjúkraþjálfara 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Félag sjúkraþjálfara 24. ágúst 2026
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar 8. september 2026
Eftir Félag sjúkraþjálfara 8. júlí 2026
Félag sjúkraþjálfara lýsir áhyggjum af áhrifum nýs komugjalds
Eftir Félag sjúkraþjálfara 24. júní 2026
Umsögn FS til ESB um starfsleyfaveitingar
Eftir Félag sjúkraþjálfara 10. júní 2026
Sjúkraþjálfun er þjóðhagslega hagkvæm
Eftir Félag sjúkraþjálfara 28. maí 2026
Á hverjum vinnudegi má ætla að yfir 3.000 manns séu frá vinnu vegna stoðkerfiseinkenna hér á landi, séu erlendar rannsóknir heimfærðar á Ísland.
Eftir Félag sjúkraþjálfara 20. maí 2026
Aðalfundur Evrópudeildar heimssambands sjúkraþjálfara
Fulltrúar félaganna sem sátu fundinn
Eftir Félag sjúkraþjálfara 27. apríl 2026
Fundur Norrænu fag- og stéttarfélaga sjúkraþjálfara var haldinn í Kaupmannahöfn 24.-26. apríl.
Show More